Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Bitra
Bitra Notandi síðan fyrir 19 árum, 5 mánuðum 4 stig
…—…

Re: Hvað var gert á konudaginn?

í Rómantík fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Við vorum bæði að vinna svo það var frekar fátæklegt. En ég bauð honum svo út að borða um kvöldið :P

Re: Mörg göt?

í Húðflúr og götun fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Var mest með 10 göt, er samt nýlega búin að taka úr naflanum (vesen, er að pæla í að stinga aftur þegar þetta er búið að gróa almennilega). Hin 9 eru öll í eyrunum á mér, industrial, 3 í sneplunum sitthvorum megin og í auricle.

Re: Hvað finnst ykkur þurfa á bæta/breyta í sambandi ykkar?

í Rómantík fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Sömuleiðis >:(

Re: hvað eruði há,gömul og þung?

í Tilveran fyrir 14 árum, 7 mánuðum
170 cm, 18 ára og 88 kg

Re: hvernig kynntust þið ?

í Rómantík fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Heh, skondið að segja frá því. Við kynntumst í sumarbúðum þegar við vorum 11 ára og vorum mjög góðir vinir þar. Svo hittumst við fyrir tilviljun fyrir utan sundlaug þegar ég var í sirka 7.bekk og urðum aftur góðir vinir, síðan flosnaði aðeins uppúr sambandinu í menntaskóla en fyrir um ári fórum við að hittast meira og byrjuðum svo saman :) komnir 10 mán núna.

Re: Ego myndir

í Tíska & útlit fyrir 14 árum, 8 mánuðum
Kæmi þér á óvart…

Re: Tannbursti...

í Rómantík fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Nei, bara, nei. Frekar sleppi ég því að bursta tennurnar en að deila tannbursta.

Re: Aldursmunur ?

í Rómantík fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Mér finnst þægilegt að nota regluna um 7 sem viðmið. Það er að þú tekur eldri aðilann, deilir í aldurinn hjá honum með 2 og bætir svo 7 við og það er þá það yngsta sem sá aðili “má” fara í. 18 ára verður þá 18/2=9 9+7=16. 18 ára mega þá yngst fara í 16 ára. Svo stækkar munurinn eftir því sem þú eldist, en reglan á eiginlega bara við um fólk sem er eldra en 14-15 ára. Annars er mesti munur á milli mín og kæró 4 mánuðir :P

Re: Um stráka og gistingar

í Rómantík fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Jæja, lítið sem ég get gert ef hann er eins og þú :/ Bætt við 14. maí 2009 - 01:56 Líður samt aðeins betur að vita að þetta gæti verið annað en “vond lykt inni hjá mér”, “hatar mig leynilega”, “foreldrar mínir nauðga honum í leyni”

Re: Veit einhver..

í Tilveran fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Kvenkynsformið af því. Líka nafn á hvalategund sem er verið að veiða í vísindaskyni…..

Re: Um stráka og gistingar

í Rómantík fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Já, reyndar. En hann líka, þannig það ætti ekki að vera það mikið mál.

Re: Guð ekki í tísku?

í Tilveran fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Ég hef verið trúlaus síðan ég var 8 ára, en það er bara mín ákvörðun. Hinsvegar öfunda ég fólk sem trúir, það hlýtur að vera þægilegt þegar maður gengur í gegnum einhverja erfiðleika að trúa því að sama hvað þá er einhver að fylgjast með og passa mann.

Re: Um stráka og gistingar

í Rómantík fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Ég vona ekki. Þau hafa alltaf lagt sig fram við að vera næs og hann hefur aldrei minnst á það við mig :S

Re: Status : ?

í Rómantík fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Ég hélt að þú værir að tala um status á facebook….. Sumir eru of háðir :(

Re: Hvað eruð þið hræd við?

í Tilveran fyrir 14 árum, 12 mánuðum
Ég er myrkfælin á stöðum sem ég þekki ekki, en ég næ samt að komast hjá því ef það er ljós eða ef ég er ekki ein. En það er voða besik ótti held ég. Hins vegar er mér sjúklega illa við að fólk haldi á mér eða haldi mér uppi. Kærastinn minn á það til að halda utan um mig og halla sér síðan fram, þannig ég hallast aftur, þangað til að hann heldur nánast á mér. Ég hata það. Ein versta upplifun mín er þegar ég var í sumarbúðum og við vorum að gera e-rja traustæfingu þar sem fólk liggur á bakinu...

Re: viðurnefni

í Tilveran fyrir 15 árum
Hre-Hre prinsessa af Ólavía. Í stuttu máli, þá var þetta tilraun hvort ég gæti haft áhrif á einkunnargjöf í stærðfræði í 10.bekk. Það virkaði ekki.

Re: breyting?

í Tíska & útlit fyrir 15 árum
Mér finnst þú bara ekki hafa breyst neitt, því miður.

Re: mitt víkingaarmband

í Tíska & útlit fyrir 15 árum
Hah! Ég sá það á undan ykkur öllum.

Re: allir að taka myndir :)

í Húðflúr og götun fyrir 15 árum, 1 mánuði
Ég er með eitt í naflanum sem er samt frekar nýlegt og er að vera leiðinlegt í að gróa. Er allt í lagi að ég sendi þér mynd seinna þegar það lítur betur út?

Re: Ör.

í Tilveran fyrir 15 árum, 1 mánuði
Ég er með eitt vinstra megin á enninu eftir að ég hoppaði á ofn þegar ég var lítil. Svo er ég með eitt á hnúanum og ég var með eitt sem kom yfir augað á mér(eins og á Skara) eftir að stelpa sparkaði framan í mig.

Re: Forrita einfalda reiknivél með binary tree (C/C++)

í Forritun fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Vá. Ég bæði dáist að þér og er pínu hrædd á sama tíma :P

Re: einkunnir úr prófunum :)

í Skóli fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ömm, dóni ég… HÆ! :D

Re: einkunnir úr prófunum :)

í Skóli fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Já, það er bara sorglegt ef maður fellur í myndmennt. Til að falla í því að krota þarf maður að hafa hæfileika! Það er verra að falla í myndmennt en að falla í lífsleikni. Ef þú fellur í myndmennt ættiru að fara aftur uppí tréð sem þú komst úr! Að lokum, fall í myndmennt<allt annað í heiminum! Enda fékk ég 5 og náði :D

Re: Uppáhalds Anime Character ?

í Anime og manga fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Oh, snap! Busted!

Re: einkunnir úr prófunum :)

í Skóli fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Gætiru þá fallið í skák? Því það væri of fyndið :D
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok