Já, vitaskuld er til korkur fyrir áramótin enda er deginum ljósara að um áramótin þarf að ræða. Hvar á fólk annars að geta rifist um hver keypti mest af flugeldum, hvort áramótaskaupið hafi verið fyndið og hvar mesta stemningin var á nýársnótt. Þetta eru allt alíslensk umræðuefni sem geysilega mikilvægt er að fá botn í í kringum áramótin. Þar sem þú ert nú, samkvæmt minni bestu vitund, Íslendingur ættir þú að sjá að þessi korkur er mikil nauðsyn og að þú ert stak í mengi þessa skrýtna fólks...