Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

BOSS
BOSS Notandi frá fornöld 48 ára karlmaður
488 stig
There are only 10 types of people in the world:

Kauptorg! (0 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 6 mánuðum
ÉG hef aðeins verið að skoða Kauptorg síðuna í dag. Mér virðist að yfir 90% af vörum til sölu þarna sé frá notendanum “Kauptorg”. Eru þeir sjálfir einu notendurnir þarna? Það er mjög lítið um vörur frá öðrum notendum. Svo þegar maður skoðar í hvaða vörur er búið að gefa tilboð, þá eru kannski ein af hverjum tuttugu sem einhver hefur boðið í. Kannski þeir (Kauptorg) sjálfir? ;) Það eru núna 63 tilboð í gangi. funfun BOSS

12. ágúst '99 (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég fór í dag og keypti mér fyrsta “íslenska” DVD diskinn. 12. ágúst '99, tónleikar með Sálinni. Ekki það að ég fíli Sálina, heldur var ætlunin meira svona að eignast fyrsta íslenska DVD diskinn. Þó eru þetta flottir tónleikar. Ekki skemmir að vinkona mín hún Íris er þarna líka :) En ég setti diskinn í og byrjaði að horfa, og varð fyrir léttum vonbrigðum. Myndgæði eru léleg miðað við DVD mynd, svona svipað og góð VHS gæði, ekki betra. Hljómgæðin eru sæmileg. Bassinn er allt of mikið tjúnaður...

4000 :) hehehe (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Póstur númer fjögur þúsund :) Gaman gaman, hef ekkert annað að segja… BOSS

Verðlagning á iBook tölvum (13 álit)

í Apple fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég var að skoða verðskrá fyrir iBook tölvurnar á apple.is. Þvílíkt og annað eins hefur maður ekki séð lengi! Það eru þrjár útgáfur af vélum í boði: 1. (Grunnvél) 12,1-tommu TFT XGA skjár 1024x768 díla upplausn! 500MHz PowerPC G3 256K L2 áfast skyndiminni 64MB SDRAM vinnsluminni 10GB Ultra ATA harður diskur CD-ROM geisladrif 8MB skjáminni 10/100BASE-T Ethernet 56K innbyggt mótald VGA skjátengi Tvö USB tengi FireWire tengi Spennubreytir Rafhlaða Verð: 179.900,- Alls ekki slæmt verð fyrir svona...

Algjör schnild ! (2 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sáuði berrasaða kokkinn í gær? Djöfull er gaurinn smámæltur! Þó var ein snilld sem kom fram í þættinum, það var vodka-fyllt melóna…mmmm Vænni trekt (helst stál) er stungið djúpt í hlið á stórri vatnsmelónu og allt að heilli vodka flösku er hellt í melónuna. Þetta ferli tekur víst um eina viku, smá slurki bætt í trektina við og við. Svo er bara skorið og étið af bestu lyst :) Þetta þarf maður að prófa sem eftirrétt í grillpartíi eða við álíka tilefni…Áramót :) Njoy… BOSS

Hmmmm.........Hei meight (3 álit)

í Sápur fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ég var að spá…Horfir einhver á Nágrana lengur? Ég man þegar maður var að horfa á þetta fyrir örugglega 10-12 árum síðan, þegar Kyle Minoque (Vitlaust skrifað) “megababe” lék í þessu…hehe. Svo hefur maður sýnst þetta fara dalandi. BOSS

IE55 SP2 uppfærsla (3 álit)

í Windows fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Rakst á þessa uppfærslu fyrir IE5,5. Veit ekkert nákvæmlega hvað hún gerir en er örugglega til bóta. 6-18MB download. Ekkert restart nauðsinlegt, ótrúlegt ;) Þessi uppfærsla er ekki listuð í “windowsupdate.com”. http://www.microsoft.com/windows/ie/download/ie55sp2.htm BOSS

Hvað er Warez og hvað er ekki Warez? (9 álit)

í Windows fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Jæja, það hlaut að koma að því að það yrði allt vitlaust á þessum korki ;) (Go Tran, go) . :) Ég er að spá hvað sé Warez og hvað ekki. Ég hef keyrt öll stýrikerfi frá Microsoft (nema XP) og öll hafa þau komið frá original diskum. Allt frá 3.0 upp í 2000. NT og 2000 hef ég keypt en hin fengið gefins (á original diskum frá MS). XP hef ég dl. í mörgum útgáfum en ekki nennt að setja inn. Svo, eins og flestir hard core tölvunotendur, þá er ég með hrúgu af illa fengnum forritum inn á vélinni...

Er ekki í lagi með suma? (8 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Vá…ég var að skoða verðlistann á tolvulistinn.is og dísus kræst…Þeir eru að selja tilbúnar vélar: 1,2GHz T-bird vél með 230W powersupply! Ekki nóg með það, heldur er líka 1,33GHz með sama supply! Og svo 1,7GHz P4 vélar með 250W powersupply! Come on. Hver er eiginlega maskínu-hönnuður hjá þeim? Fífl og fávitar. BOSS

Eldveggur - Útskýring og smá leiðbeiningar (11 álit)

í Windows fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Firewall eða eldvegur: Þetta er forrit eða vélbúnaður sem að hindrar óæskilega traffík til og frá vélinni þinni. Fyrir þá sem eru sítengdir netinu er nauðsin að vera með einhverskonar eldvegg til að verja tölvuna. 1. Vélbúnaðar (hardware) eldveggur er besta lausnin en er oftar en ekki rándýr búnaður, getur hlaupið á miljónum króna. Með svona búnaði getur þú verið nánast öruggur með öll þín gögn á bakvið græjuna. 2. Hugbúnaðar (software) eldveggur er líka ágætis lausn. Yfirleitt þarf töluvert...

Framtíð áhugamálsins Windows (16 álit)

í Windows fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Smá umræða um Windows og hina og þessa menn sem elska að hata þetta kerfi. 1. Á áhugamálinu Windows er ætlunin að tala um Windows stýrikerfi, ýmis vandamál sem koma upp í keyrsu og uppsetningu. “Tips’n tricks” og ýmislegt annað þessu tengt. 2. Windows, þótt mönnum líkar betur eða ver, er lang, lang mest notaða stýrikerfi í heiminum í dag . Um eða yfir 90% markaðshlutdeild er nú bara ekkert slæmt. Restin Macos, Linux, Unix og ýmislegt annað eru fín stýrikerfi út af fyrir sig, en eru að stefna...

Harðdiskar fyrir ferðatölvur (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Veit einhver hér hvar er hægt að fynna review um harðdiska fyrir ferðatölvur? Ég er að spá í að fá mér stærri disk í ferðavélina (20GB+) og fynn hvergi neitt um prófanir á svoleiðis gripum. BOSS

Af hverju REAL ? (6 álit)

í Háhraði fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Realvideo eru með svo ömurleg gæði. Afhverju er ekki notað pro stuff eins og QuickTime? Win Media stuff er meira að segja betra en þetta helv. real rusl. BOSS

Útlit Vélbúnaður (7 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég verð nú að segja að mér finnst þetta nýja útlit ekkert allt of flott, en maður var kannski bara orðinn allt of vanur þessu gamla. Eitt sem er þó verra er að mér finnst litirnir á linkunum ekki réttir. Mætti vera öfugt, þ.e. það sem þú hefur skoðað áður ætti að vera grátt og óskoðaðir linkar rauðir. BOSS

Nvidia N-Bench (4 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Er einhver hérna sem veit um góðan link á Nvidia N-Bench benchmark forritið. Ég fynn bara einn sem er svo hræðilega slow, 2,5k/sec. Þetta eru 43 meg. NBench-1726-0.zip BOSS

Þráðlaust LAN (6 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég er loksins að fá mér betri net-tengingu heima. Er með fartölvu og 56kbit núna. Stefnan er tekin á ADSL 256 eða 512. Málið er að mér leiðist afskaplega snúrur þannig að ég var að spá í að fá mér þráðlaust LAN fyrir vélina. Þá getur maður verið á netinu t.d. útí garði ;D Veit einhver hvar þetta fæst og hvað þetta kostar? Þ.e. til að tengjast í ADSL módemið og þráðlaust yfir í ferðavélina (PC-card) BOSS

Notarðu Vírusvarnarforrit? (0 álit)

í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 10 mánuðum

3DMark 2001 komið! (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
Fyrir áhugamenn um benchmark forrit þá er 3DMark 2001 ný komið út! 3DMark 2000 var cool, 2001 hlýtur að vera frábært :) http://www.the-ctrl-alt-del.com/game/3dMark2001New.htm BOSS

Gáta (3 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum
Hann hangir, hann hangir, hann hangir, niður Hann rís, hann rís, hann rís, upp Hann stendur, hann stendur, hann stendur, uppi Hann sprautar, hann sprautar, hann sprautar, út Hann sígur, hann sígur, hann sígur, niður Hann er, hann er, hann er, búinn Þannig er nú það ;)

Kæliplötur + viftur (3 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
Ég er að fara að uppfæra í K7 1GHz. Málið er að ég vill fá góða kælingu fyrir örgjörvan. Hvar fást góðar kælingar hér á landi? Trx.is er að selja SuperOrb sem lítur vel út en kælir illa a.m.k samkvæmt “Cooler roudup” hjá Anandtech. Er enginn sem selur alvöru “hard core” kælingar? BOSS

K7 @ 133Mhz bus (1 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
Er einhver verslun hér í bæ sem selur AMD K7 1000MHz sem er gerður fyrir 133MHz (266 DDR) bus? Nenni ekki að taka áhættuna með að taka “venjulegan” örgjörva sem virkar kannski ekki á 133MHz. Ég fór í Tölvulistann og þeir hafa ekki verið að selja þessa útgáfu… BOSS

GeForce3 vs. Radeon2 (13 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum
Sælir! Geforce3 er alveg að fara að koma í verslanir! Verðið á GF3 er alveg fáranlegt að mínu mati, 600 USD fyrir eitt skjákort! Og þá á eftir að flytja það inn og borga skatta! Ég var að lesa einhverjar fréttir “rumors” um að ATI væri að koma út með Radeon2 sem ætti að slátra GF3 í öllum benchmörkum, og fyrir minna verð. Ég er ekki alveg sanfærður með þetta en svona hljóma fréttirnar. ATI hefur að vísu aldrei getað boðið “high end” 3D grafík kort. En það verður gaman að sjá hvað verður með...

STEF-skattur (1 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég vill fá inn STEF skattinn sem áhugamál, allavega þangað til þetta bull berður tekið af. Þar gæti verið hægt að segja nýjustu kjaftasögurnar um Magga Kja(ft)rtans og Björn Bjarna. Og að sjálfsögðu líka fleiri fréttir af þessu leiðinlega máli. BOSS

Smá grín :) (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 1 mánuði
http://web14.compaq.com/falco/detail.asp?FAQnum=FAQ2859 Sniðugt…ekki satt? Ég hef verið lengi að spá í þessu ;) BOSS

Hvaða móðurborð fyrir T-bird? (5 álit)

í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 1 mánuði
Ég er í smá vandræðum. Ég er að fara að uppfæra í T-bird 1000-1200 MHz. Málið er að ég veit ekki hvaða móðurborð ég á að fá mér. Það eru að koma einhver vandræði með Abit KT133A borðið, en það er einmitt það sem ég var að spá í :( Svo er líka til KT133A borð frá MSI. Það á að vera það allra stöðugasta. Hvað á ég að gera? Ég veit ekki um önnur KT133A borð sem fást hér. ps. hvaða örgjörva kælingu mælið þið með? BOSS
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok