Það má finna slíka steina víðsvegar um landið og mæli ég með að t.d. skoða Íslensku steinabókina eftir Kristján Sæmundarson og Einar Gunnlaugsson, þar er fjallað um alla slíka steina á Íslandi og hvar þá má finna. Samkvæmt henni má t.d. finna amethyst(ametýst) helst á Austurlandi í kringum Hornafjörð, Lón, Bogarfirði eystri og Gerpi. Fyrir ykkur hin, þá er það mjög þekkt fyrirbrigði að steinar eru tengdir við ákveðna krafta og eiga að gefa t.d. góða orku, veita heppni, styrkja líkama og sál...