Ég og vinur minn ætlum að gef út bók fyrir jólin og okkur vantar teiknara sem er tilbúinn að gera nokkrar myndir fyrir okkur.

Þetta verður aðalega grófar blýants myndir, ekki mikið um þrívídd eða flóknar andlitsmyndir og lítið sem ekkert um litamyndir. Þar sem við höfum ekki mikið fjármagn á milli handanna þá erum við að vonast að einhver væri til í að gera þetta frítt og getað notað þessa bók til þess að koma sér á framfæri. Nafnið myndi að sjálfsögðu birtast í bókinni.

Sendið mér skilaboð ef þið hafið áhuga og eitthvað sem þið hafið teiknað.

Bætt við 12. ágúst 2010 - 16:09
Bókin er í spennusögu og vísindaskáldsögu flokkunum. Gróf lýsing á því sem við erum að leita að er:
Fólk í ýmsum klæðnaði allt frá brynjum og niður í hversdagsleg föt.
Allar gerðir af vopnum, byssum og sverðum o.fl.
Illa slösuðu fólki, vantar útlimi eða með stór og mikil sár.
Allskyns farartækjum.
Grófum landslagsmyndum, þurfa ekki að vera flóknar.
Stór og lítil dýr, bara venjuleg, ekki mikið af frumskógardýrum.

Bókarkápan þarf hins vegar að vera frekar flott og vel gerð, en henni munum við lýsa bara þeim sem við veljum.