Ekkert að því að trúlofa sig, en fólk er farið að misnota þetta hugtak. Að trúlofa sig innan við árs samband finnst mér fáránlegt. Allt í lagi að vera voða ástfanginn en trúlofun á að vera tákn þess að þetta par vilji gifta sig, búa saman, lifa lífinu saman það sem eftir er, ekki staðfesting á því að fólk sé í sambandi. En miðað við hve mikið af fólki trúlofast, giftir sig og svo skilur í samfélaginu í dag getur verið að þessi hugtök séu farin að missa gildi sitt.