Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Banner (5 álit)

í Ævintýrabókmenntir fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Hvenær á eiginlega að setja upp bannerinn fyrir þetta áhugamál?

Nýju Ísfólksbækurnar (17 álit)

í Ísfólkið fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Er einhver hérna búin að vera að kaupa nýju útgáfurnar, sama þótt þær séu voða kjánalegar þá líta þær örugglega ágætlega út í hillunni. Og auðvitað skemmtilegar bækur. Einhver?

Hvern af þeim útvöldu heldur þú mest uppá? (0 álit)

í Ísfólkið fyrir 16 árum, 11 mánuðum

Alrún (0 álit)

í Ísfólkið fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Skemmtileg mynd af alrúnum sem ég rakst á netinu.

Hvað notar þú helst? (0 álit)

í Myndlist fyrir 16 árum, 11 mánuðum

Undarlegur draumur - sársauki í baki (0 álit)

í Dulspeki fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Þetta er draumur sem gerðist fyrir svolitlu síðan. Ég fór að sofa á miðvikudagskvöldi og byrjaði að dreyma. Ég man ekki alveg byrjunina en svo „vaknaði“ ég. Ég var alveg viss um að ég væri vöknuð þarna í draumnum. Ég heyrði pabba minn og systur ganga niður stigann í íbúðinni okkar og niður í eldhús eins og á hverjum öðrum fimmtudegi. (Pabbi var ekki einu sinni á landinu þarna). Svo byrjað systir mín að spila á píanóið og ég fór loks frammúr. En í stað þess að labba fram sveif/flaug ég fram...

Þema 15 - Draugadans. (8 álit)

í Myndlist fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Jæja þetta er vonandi nógu drugnalegt fyrir þetta alltsaman. Þetta eiga annars að vera draugar fyrir aftan dömuna. Gert bara í Photoshop með teikniborði (sem er akkurat núna í verkfalli *cry*).

Saga - Ástir Lúcífers. (16 álit)

í Ísfólkið fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Jæja það er kominn tími til þess að ég sendi grein inn á þetta yndæla áhugamál. Og já það er klárlega *spoiler* ef þú ert ekki búin/n að lesa bók 29. Saga. (bók 29) Árið 1836 fæddist dóttir Önnu Maríu af ætt Ísfólksins og Kols Símonar. Hún fékk nafnið Saga sem þýðir ævintýri á sænsku, enda var hún eins og ævintýraprinsessa. Hún bar kolsvart hár eins og faðir hennar sem var komin af vallónum en Saga var með ljósgræn augu, enda var hún útvalin. Saga bjó góðu lífi með foreldrum sínum og lærði...

The Dead Zone. (7 álit)

í Bækur fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Sælt veri fólkið. Hefur einhver lesið The Dead Zone eftir Stephen King? Góð bók? Er að pæla hvort ég eigi að hafa fyrir því að finna mér hana þar sem hún er ekki til á neinum nágranna sögnum mínum.

Þema 15 (5 álit)

í Myndlist fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Jæja ég er farin að verða rosalega forvitin, 11 manns búnir að senda inn myndir í þema 15. Svo ég spyr þar sem ég er hryllilega forvitin. Hverjir eru búnir að senda inn mynd? Ég sendi inn eina þannig það eru 10 eftir.

Ástir Lúsífers (7 álit)

í Ísfólkið fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Þeir sem tóku eftir þráðinum sem ég skrifaðu um hvað mér fannst lýsingin á Lúsífer í lendarskýlu fyndin vita hvað þetta er. Fyrir hina þá er þetta hinn mikli Lúsífer sem hefur ekki efni á öðru en lendarskýlu :D Frekar crappy gæði, nennti ekki að skanna svo að ég tók bara mynd.

Dooom! (10 álit)

í Myndlist fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ókei þið eigindur teikniborða hér á huga. Ég á svona voða fínt teikiborð, hef átt það í ár núna en allt í einu virðist penninn minn hafa gefist upp. Ég er búin að reyna allt, lemja pennan, setja teikniborðið upp á nýtt og já ég er búin að skipta um batterí. Það undarlega er að músin sem er með borðinu virkar alveg. Ef þið hafið lent í einhverju svipuð eða hafið einhver ráð handa mér er það mjög þegið.

Ástir Lúsífers (2 álit)

í Ísfólkið fyrir 16 árum, 11 mánuðum
Ég var að endurlesa bókina um Sögu, þ.e.a.s. Ástir Lúsífers og skemmti mér konunglega sérstaklega þar sem ég vissi plottið og voru því hlutir sem ákveðið fólk sagði og gerði alveg sprenghlægilegir. Svo þegar það kom svaka lýsing af Lúsífer í öllu sínu veldi með vængina og alles var það nefnt að hann væri í lendarskýlu og það fór alveg með mig. Ég lá í kasti þar sem ég hafði ekki munað eftir þessu litla smáatriði. Ég rissaði meira að segja upp smá grínmynd af Sögu og honum í blessuðu...

Charles Chaplin (4 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum
Hey ég var að spekúlera hvort einhver kannaðist við kvikmynd um Chaplin sem er, að ég held gefin út 1992 og fjallar um líf hans. Og hvort myndin sé til einhverstaðar hér á Íslandi í sölu eða videoleigu. Með fyrirfram þökk.

Jólabíómyndir 2005 (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Sælinú, ég var að velta því fyrir mér hvort einhver muni hvaða skemmtilegu jólamyndir voru í fyrra eða árið 2005? Jafnvel hvaða óskemmtilegu myndir voru.

Jólabíómyndir 2005 (9 álit)

í Hátíðir fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Sælinú, ég var að velta því fyrir mér hvort einhver muni hvaða skemmtilegu jólamyndir voru í fyrra eða árið 2005? Jafnvel hvaða óskemmtilegu myndir voru.

Draumaráðingabækur (4 álit)

í Dulspeki fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Sælinú, ég var að spekúlera hvort þið vitringarnir hérna vissuð af einvherjum fínum draumaráðningabókum sem eru seldar hér á íslandi og hvar þá? :)

Acryl máling (7 álit)

í Myndlist fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Sælt veri fólkið, ég var að spekúlera hérna hvort einhver vissi um einhverja acryl liti sem eru ekki sérstaklega dýrir en glansa ekki mikið þegar þeir þorna.

Hjálpi mér allir heilagir! (13 álit)

í Ísfólkið fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Sæll maður, þið hafið eflaust tekið eftir nýju ísfólksbókunum, fyrst þessum tvem með ekkert spes forsíðu og svo kom sú þriðja út í annari útgáfu. Svo loksins föttuðu gaurarnir að gefa út hinar bækurnar út eins og þá þriðju og er þá komnar allavega bækur 1-4 í þeirri útgáfu. En maður minn, hvað er í gangi! Mér fannst fólkið á gömlu útgáfunum oft allt of fallegt miðað við persónur, sérstaklega þá bannfærðu sem voru ekkert sérstaklega laglegir, en þetta er miklu verra! Við erum komin með Þengil...

Eragon (9 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Pæling, hefur einhver rekist á Eragon trailer?

Fables (2 álit)

í Myndasögur fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hefur einhver hérna verið að lesa Fables? Mér finnst þær snilldarlegar, alveg yndislegt hugmyndaflug þarna. Er reyndar ekki komin lengra en á bók 5 en hlakka til að lesa þær næstu.

Death Note Bækurnar (9 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég sá mynnst á Death Note hér í könnuninni, svo að ég býst við að fólk hafi verið að spjalla um hana. Gosh, ég hef ekki verið á huga lengi, svoldið eftirá :P En allavega þetta eru með bestu manga bókum sem ég hef nokkruntíman lesið, plottið er snilldarlegt og maður getur ekki beðið eftir því hvað gerist næst. Er búin að lesa allar komnar út og skora á alla sem eru ekki búnir að lesa þessar blessuðu bækur að gera það. Strax.

Boy blue (3 álit)

í Bækur fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Sælinú, þetta er ekki beint umræða um bók, eða ekki svo ég viti, heldur ævintýri eða eitthvað. Svo vill til að mig langar einstaklega mikið að vita hver hinn dularfulli “Boy Blue” er, enda hef ég aldrei heyrt um hann áður, ég veit bara að hann spilar á lúður, trompet, something. Ef þú þekkir til þessarar persónu máttu endilega fræða mig :)

3D forrit (3 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Sæinú, ég var að spekúlera hvort einhver vissi hvort einhver þrívíddarforrit séu til og seld hér á Íslandi. Ég hef heyrt um að Bryce og Maya séu góð forrit. Endilega bendið mér á hvar er hægt að komast höndum yfir svona og ef þið þekkið einhver önnur góð forrit. Og auðvitað ef þið þekkið einhverja skemmtilega fría tutorial photoshop síðu má linkurinn endilega fylgja með :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok