Þetta er draumur sem gerðist fyrir svolitlu síðan.

Ég fór að sofa á miðvikudagskvöldi og byrjaði að dreyma. Ég man ekki alveg byrjunina en svo „vaknaði“ ég. Ég var alveg viss um að ég væri vöknuð þarna í draumnum. Ég heyrði pabba minn og systur ganga niður stigann í íbúðinni okkar og niður í eldhús eins og á hverjum öðrum fimmtudegi. (Pabbi var ekki einu sinni á landinu þarna). Svo byrjað systir mín að spila á píanóið og ég fór loks frammúr. En í stað þess að labba fram sveif/flaug ég fram til systur minnar.

Svo datt ég úr þessum draum ég lá aftur í rúminu mínu. Þá sá ég ekkert sérstakt en mér fannst eins og hendurnar á mér væru þyngdarlausar og það var eins og þær byrjuðu að svífa upp á við og voru byrjaðar að draga meira af mér upp. En þá kom þessi rosalega óþægilega hitatilfinning á bakinu á mér, þar var heldur sárt og bakið á mér titraði alveg. Þá tók ég um bakið með annarri hendinni og hugsaði svo í draumnum upp úr þurru að ég næði örugglega meiri stjórn á mér ef ég slakaði á. Þannig að ég reyndi að slaka á ég neyddi hendurnar eiginlega aftur niður.

Svo vaknaði ég ekkert smá undrandi á þessum draumi og sá að ég var bara búin að sofa í tæpan hálftíma.

Ekkert smá undarlegur draumur að mínu mati :P
kveðja Ameza