Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Takk =>

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Í alvöru? :D frábært!

Re: Hvernig dó?

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Bellatrix, Andromeda og Narcissa voru systur. Andromeda var ekki inni á ættartrénu = góð. Varð að tékka :) En þetta með Sirius, sem var uppáhaldið mitt! ;_: þá fannst mér það ekki nógu skýrt hvað þessi bogagöng voru. Mér skildist að hann hefði einfaldlega dottið inn í heim hinna dauðu og þaðan getur enginn snúið aftur. Alger hryllingur.

saga_aesa@hotmail.com Flýttu þér hægt.

Re: Harry Potter gegn unglingafordómum

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já unglingurinn Harry. Æææ. Skapvondur, ekki bara vegna þess að það talaði enginn við hann, þótt það hafi verið verulega stór hluti ástæðunnar, heldur líka bara vegna þess að hann er orðinn uppstökkur unglingur. :) Og klaufskur í stelpumálum, gövöð minn góður!

Re: Harry Potter gegn unglingafordómum

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já unglingurinn Harry. Æææ. Skapvondur, ekki bara vegna þess að það talaði enginn við hann, þótt það hafi verið verulega stór hluti ástæðunnar, heldur líka bara vegna þess að hann er orðinn uppstökkur unglingur. :) Og klaufskur í stelpumálum, gövöð minn góður!

Re: Dartaníja Derów,5. kafli, Áhugaspuni með SPOILERUM

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
:) Þetta er frábærlega skemmtileg saga! Ég er reyndar ekki búin að lesa fyrstu tvo kaflana, veit ekki hvar á að finna þá en þetta er samt æði! :) Hlakka til að lesa framhaldið.

Re: Atriðum bætti við

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég hef ekki tekið sérstaklega eftir þeim, hvaða atriði eru það?

saga_aesa@hotmail.com Flýttu þér hægt.

Re: Af hverju treystir Dumbledore Snape?

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég var reyndar að meina af hverju varð honum bara einu sinni illt en ekki oftar, en jæja. Það gerðist líka þegar hann leit í augun á Snape, er það ekki? Og hatrið skein út úr augunum á S.

Re: Af hverju treystir Dumbledore Snape?

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Snape hafði ástæðu til þess að vera illa við James, já, en Harry? Eina ástæðan fyrir því að Harry er illa við Snape er sú að Snape kemur (einstaklega) illa fram við hann og af hverju er það? Af því að hann líkist pabba sínum í útliti?? Snape lagði fæð á Harry áður en hann kynntist honum af eigin raun, það er ömurlegt.

Re: hver????

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ertu viss? Hann lítur út fyrir að vera Írskur álfur (fyrir utan dúnúlpuna). Það voru svoleiðir fyrirbæri á quidditchkeppninni í fjórðu bókinni. Græni liturinn á bakvið er líka litur Íra, er það ekki?

aesa_saga@hotmail.com Flýttu þér hægt.

Re: Af hverju treystir Dumbledore Snape?

í Harry Potter fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hann treyrtir Snape sem töfradrykkjakennara en hann neitar honum aftur og aftur um stöðu kennara í vörnum gegn myrku öflunum. Hann treystir honum því greinilega ekki alveg, það er eitthvað… Snape er vondur maður. Takið bara eftir því hvernig hann fer með nemendur, lætur Neville prufa misheppnað töfrasull sem gæti auðveldlega verið baneitrað! Svo er hann líka spilltur, hann gerir upp á milli nemenda. (Slytherin/aðrir[Gryffindor]) En það er aldrei að vita með plottið. Af hverju varð Harry...

Re: ~READ~ þið munið sjá eftir því að lesa þetta ekki!

í Myndasögur fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta eru FRÁBÆRAR myndir! Alveg hreint æðislegar! Og textin hefur gert það að verkum (ásamt teikningunum auðvitað) að mig langar rosalega til að lesa söguna/sögurnar(?)! Ótrúlega vel teiknaðar og flottar! Ég vonast til að verða svona klár að teikna :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok