Já hann gerði þetta snilldarlega enda sagði hann að hann eyddu 15 klukkustundum í hvern þátt. Ég man heldur ekki hvað hann heitir en hann kennir raunfræði í FB. Ég leitaði hann eitt sinn uppi til að tjá honum hve gott starf ég teldi hann hafa unnið. Svo langaði mig að spyrja, hvað finnst ykkur um að þýða nöfn á skipunum. Finnst ykkur rétt að tala um Ögra? Mér finnst gott að íslenskan sé notuð sem mest en nöfn eru nöfn.