Hvar eru salernin? Mér finnst athyglisvert að það hefur aldrei verið minnst einu orði á salerni né hafa þau sést í Star Trek. Það væri gaman að vita hverskonar tækni á að vera búið að þróa fyrir þetta “vandamál” :)

Þetta er a.m.k. eitt af aðalmálunum um borð í ISS (alþjóðlegu geimstöðinni).

Reyndar minntist Riker í TNG (man ekki hvaða þætti) á eitthvað vandamál tengt salernum fyrir einhverja humanoid-tegund sem var um borð, voru víst margir af tegundunni um borð en of fá salerni.

Spurning hvort hver tegund hafi sín eigin salerni? :)

Hljómar nett ruglað að pæla í svona hlutum, en mig langar bara að vita KÚKAR ENGINN í Star Trek? hehe :)