Sko…af öllum þeim settum sem ég hef verið að spila á í gegnum tíðina, þá held ég að það komi ekkert sett í staðinn fyrir Pearl MMX settið sem ég hef verið að nota upp á síðkastið vera yfirburða best. Ég hef spilað á topp Yamaha, Tama, Remo og Premier sett, meira að segja Signia sett sem að Gulli Briem átti, og mér finnst MMX settið yfirburða best. Svo er ég líka sammála manninum með hardware-ið. Það er stabílt, endist vel og er þægilegast að vinna með. Þannig er nú það. Vesgú…þetta finnst mér. ;)