Full Metal Panic Jæja eftir langa fjarveru er ég komin aftur.
Ég horfði á Full metal panic um daginn og þessi sería kom mér heldur betur á óvart. Ég bjóst við einhverri meðal seríu en þetta er alveg rosalega skemmtilegt.
Sagara Sosuke er afburðahermaður hjá stofnun sem heitir Mithril. Dag einn fær hann það verkefni að vera lífvörður hinnar 16 ára Chidori Kaname en hún má ekkert vita af því. Hann þykist því vera skiptinemi í skólanum hennar og á erfitt með að aðlagast hinu venjulega lífi skólastráks.
Hann eltir Chidori út um allt og kemur með byssur í skólann. Þetta veldur auðvitað miklum misskilngi milli hans og skólayfirvalda. Auk þess heldur Chidori að hann sé pervertaður stalker.
En þegar Chidori er rænt byrja hlutirnir að hreyfast!

Þetta er skemmtileg saga, dularfull, spennandi og stútfull af húmor og svo eru auðvitað nokkur vélmenni inn á milli. Japönsku raddirnar eru feikilega vel leiknar og hæfa persónunm vel.
Hver þáttur er 23 mín og eru 24 þættir í fyrstu seríunni og 15 í þeirri seinni.
Ég hvet alla til að kíkja á þessa þætti og hægt er að leigja þá í Nexus.