Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

The Third - The Girl with the Blue Eye (6 álit)

í Anime og manga fyrir 16 árum
Mjög góðir þættir hér á ferð. Svona Fantasía í bland við post-heimsenda framtíð. Honoka (stelpan í miðjunni) er mjög góð aðalpersóna í sögunni. Mæli hiklaust með henni :)

Yukihara systkinin (5 álit)

í Anime og manga fyrir 16 árum, 6 mánuðum
3 original persónur sem ég er að nota í sögu (sem er ennþá í vinnslu, btw). Þessar persónur eru systkini (sú til vinstri er elst, yngsta er í miðjunni og strákurinn til hægri er miðjubarnið) og sérhæfa sig í alls konar bardaga-listum. Yukihara er seinna nafnið þeirra - yes, þau eru japönsk ;) Litaði þetta allt með Crayola litarblýöntum og notaði nýjan litastíl, t.d. með augun og hárin. Vona að ykkur líki :)

Random Girl (20 álit)

í Anime og manga fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Nýleg mynd sem ég teiknaði fyrir nokkrum dögum. Teiknaði þetta á svona hart, teiknibretti fyrir vatnsliti. Þetta er bara eitthver random stelpa, langaði bara að gera svona lineart :) Enjoy! P.S. þið megið lita hana ef þið viljið..bara muna að gefa mér credit ;)

Afslöppuð (22 álit)

í Anime og manga fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að setja myndina hérna inn…miðað við að sumir virðast hafa gaman að því að rakka öllum original myndum niður…. Anywho, ákvað samt að gera það þar sem ég er ekki búin að senda inn neina mynd nýlega :P Original persóna sem er í sögu sem ég er að búa til (ekki fanfiction saga!). Litaði hana með Crayola trélitum. Vona að ykkur líkar ^_^

Man einhver eftir þessum þáttum? (10 álit)

í Teiknimyndir fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég mundi allt í einu eftir einum þætti sem var sýndur á stöð 2 í den…. Hann var um bjarnarhún sem átti annaðhvort heima í einhverjum bóndabæ eða úti skógi. Það var einhver strákur með honum… Ég man sérstaklega eftir endalaginu…þá voru þeir tveir labbandi og það var hvítur bjarnarhúnn með þeim, líklegast kvenkyns húnn. Kannast einhver við þessa þætti? Mig vantar svo nafnið á þáttunum…

Manga bækur til sölu - ódýrt og sanngjarnt verð (9 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Jæja, nú er ég komin í svipað ástand og SvartaPerlan…Þarf að losa mig við nokkur manga og er því tilbúin að selja þau á góðu verði: Battle Angel Alita vol.1 - 700kr In Dream World vol. 1 - 550kr Sugar Sugar Rune vol. 1 - 400kr Crimson Hero vol. 1 - 550kr Amazing Agent Luna vol. 2 - 550kr Þetta eru allar mangabækur í toppstandi! Bara búin að lesa þetta einu sinni. ég get sent þetta í póstkröfu, svo fólk á landsbyggðinni þarf ekki að hafa áhyggjur ;)

Kisukrútt (9 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Mynd af persónu sem ég er að nota í sögu. Mig langaði svo að teikna hann í Chibi formi og með kattareyru og skott ^_^ Eins og alltaf, þá litaði ég hann með Crayola trélitum og gerði bakgrunninn í Photoshop.

Haruhi í yukata (40 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 4 mánuðum
Teiknaði hana eftir að ég var búin að horfa á nokkra Ouran High School Host Club þætti ^^ Maður sér ekki brosandi Haruhi oft, þannig að ég teiknaði hana brosandi í krúttlegum yukata. Litaði hana með trélitum og gerði ósköp lélegan bakgrunn inná Photoshop (var ekki í stuði að gera ekkað flottan :P ) Anyways, enjoy ^_^

Fanfiction section (4 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Væri ekki dáldið sniðugt að hafa svona Fanfic-section hérna á Manga? Ég þori nefnilega að veðja að það séu nokkrir sem eru með nokkrar sögur á hendinni (þ.á.m. ég :P ). Svona eitthvað til að hugleiða ;)

Ouran High School Host Club (82 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Jæja, mér fannst vera kominn tími til að koma með eina hressa grein, svona til að lífga upp á staðinn hérna. Og ég valdi einmitt hresst anime/manga til að fjalla um og það er Ouran High School Host Club :) Ouran High School Host Club fjallar aðallega um líf 7 nemenda í Ouran High School. Ouran er frekar ríkur skóli og er bara fyrir krakka sem eiga rosalega ríka foreldra. Eina undantekningin er nemandinn Fujioka Haruhi sem kemur frá lág-mið stétta fjölskyldu, en hún komst inní Ouran með...

Hitsugaya Toushirou (4 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Mynd sem ég teiknaði af uppáhaldspersónu minni úr BLEACH, litli krúttlegi Captain Hitsugaya ^^ Reyndi að blanda saman mínum teiknistíl og Kubo Tite…veit ekki hvort það virkaði ^^;

Nývöknuð - original (11 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Hæhæ ^_^ Langaði bara að sýna ykkur aðra mynd sem ég gerði. Þetta er karakter sem ég bjó til og er að nota í sögu. Ég notaði Crayola liti í allt nema gluggan og bakgrunninn - ég gerði þá í Photoshop.

Krútt ^_^ (8 álit)

í Anime og manga fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Þetta er ein af persónum mínum úr einni sögu sem ég er að reyna að skrifa :P Langaði bara að sýna ykkur og gá hvað ykkur finnst ^^ Notaði tréliti til að lita hann en Photoshop 7.0 í bakgrunninn.

Aðalfólkið í My Name Is Earl (7 álit)

í Gamanþættir fyrir 18 árum
Catalina, Earl, Randy, Joy og Darnell (Crabman) úr hinum glæsilegum þáttum My Name Is Earl :)

School Rumble (0 álit)

í Anime og manga fyrir 18 árum
Skóla-anime með miklum húmor! ^_^

Karin (0 álit)

í Anime og manga fyrir 18 árum
Karin, littla skrítna vampíran sem sýgur ekki blóð, heldur gefur öðrum sitt blóð!

Inuyasha & Kagome (7 álit)

í Anime og manga fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Eitt af frægustu anime-pörunum: Inuyasha og Kagome. Fyrsta skipti sem ég prófaði að teikna þau. Kom bara ágætlega út, nema ég er ekkert sérlega sátt hvernig Kagome endaði :P Enjoy! :)

Kyo, Tohru & Yuki (4 álit)

í Anime og manga fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Aðalpersónurnar úr hinu vinsæla anime/manga: Fruits Basket. Teiknaði þetta fríhendis og litaði með Crayola trélitum en ég gerði bakgrunninn með Photoshop. Enjoy :)

Smári (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Hér er mitt ljóð sem ég birti í fyrsta sinn hér á huga… Smári Fjögurra laufa smári. Hefur þú séð svoleiðis? Það hef ég. Smárinn lá á jörðinni og beið eftir því að vera tíndur upp. Ég tíndi hann upp. Hann leit sorgaraugum á mig. Tár féll niður á fingur mína þegar ég hélt á honum. Það var sagt að smári myndi gefa hamingju. Það gerði minn ekki. Hann gaf frá sér sorg og einsemd. Hann kjökraði í hinsta sinn og dó. Nú lifi ég í einsemd og sorg því smárinn fann ekki sína hamingju.

Full Metal Panic! (14 álit)

í Anime og manga fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Full Metal Panic er ein af bestu Anime-þáttum sem ég hef séð. Hún er fyndin,spennandi og skemmtileg. :) Full Metal Panic fjallar um leynileg samtök sem nefnist “Mithril”. Þau sjá um að tortíma hryðjuverkamönnum og verksmiðjum sem framleiða vímuefni með því að nota sérstök risavélmenni, sem heita Armslave (AS). Einn daginn, sendir samtökin þrjá bestu hermennina til að fylgjast með 16 ára stelpu, henni Kaname Chidori, vegna þess að þeir gruna að henni verði einhverntímann rænt. Þau Major...

Manga teikningar á Íslandi...... (2 álit)

í Anime og manga fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Sæl verið þið! Ég er nýbyrjuð að vera notandi á Huga.is og ég er einnig nýbyrjuð að hafa áhuga á Manga/Anime. Mér finnst þetta vera bestu teiknimyndirnar sem ég hef séð og eru margar í uppáhaldi hjá mér! :) En það sem ég var að velta því fyrir mér, er hvort það séu fólk hérna á Íslandi sem hafa áhuga að gera anime þætti. Og þá meina ég að allir Manga/Anime-aðdáendur geti kannski spreytt sig á að teikna og koma með hugmyndir fyrir þættina…. Þetta er bara mín skoðun því ég er sjálf byrjuð að...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok