Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.284 stig
384 greinar
39.628 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

Japanskur Squire 1990-91. (12 álit)

Japanskur Squire 1990-91. Var að versla þennan. Þolinmæði getur borgað sig. Á endanum býðst manni happafengur.

telecaster fail (12 álit)

telecaster fail ég rakst á þessa mynd á ebay. sér e-r hvað stingur í stúf á þessari mynd? gott ef þessi var ekki staðsettur í kína. þeir kunna þetta.

Johnny A. Gibson (15 álit)

Johnny A. Gibson sexý gíta

Teiknimyndagítar (21 álit)

Teiknimyndagítar Hér er gítar sem ég fékk gefins frá vini mínum. Ég pússaði af honum lakkið og þakti hann síðan með myndasögum, límdi þær á og lakkaði síðan yfir. Ég föndraði þetta um jólin 2005.

CMI LP Copy (9 álit)

CMI LP Copy Gripurinn sem skrifað er um á Almennt um hljóðfæri.

epic fiðla xD (6 álit)

epic fiðla xD svona til tilbreytingar for once, frá þessum gítar myndum hérna =D þá er hér mynd af fiðlu =)

Setupið mitt. (28 álit)

Setupið mitt. Sælir hugar, ég ákvað að senda inn mynd af því dóti sem ég nota mest. Reyndar ekkert rosalega góð mynd, en vonandi fá einhverjir græjuperrar bóner :)

Magnarinn: Vox ac30 haus og 4x12 box
Gítarinn: Fender Jazzmaster American Vintage Reissue
Á effektabrettinu er Boss tu2 - Vox wah - Digitech whammy - Zvex seek wah II - Zvex box of rock - Proco rat - EHX Big muff - MXR phase 90 - Ibanez ad9 - EHX memory man - EHX holy grail - Moog ring modulator - Voodoo Lab plus2

Fender Stratocaster x 3 (18 álit)

Fender Stratocaster x 3 Ákvað að henda einni hópmynd af Strat safninu mínu í tilefni þess að einn var að bætast í hópinn…

En þetta eru talið frá vinstri:

Fender Stratocaster Deluxe Series Powerhouse MIM ´05.

Sá nýjasti í safninu, liturinn heitir Caramel Metallic. Powerhouse gítarar komu með 12 dB aktívu miðjuboost-i og er því með 9 volta rafkerfi. Mjög kraftmikið sánd í honum.

Fender Stratocaster Standard MIM ´95.

Ósköp venjulegur mexíkó strat, skellti pickup-um úr HW1 series strat í hann sem gerði mikið fyrir hann, dýrka hálsinn á honum og nota hann því mjög mikið.

Fender Stratocaster 50´s (1957) Re-Issue MIJ ´84-´87

Alveg snilldargripur frá Japan, Metallic blue á litinn. Þegar ég fékk hann í hendurnar þá var búið að hræra í rafkerfinu á honum og búið að setja Lace sensor í miðjuna þannig ég tók mig til og reif það út og skellti SCN (Samarium Cobalt Noiseless) pickupa og S-1 rafkerfi í hann, by far fjölhæfasti strat sem ég hef átt og næ að viðhalda old school look-inu á honum.

Held að ég hafi náð að segja allt sem segja þarf um þessa gripi… ef ekki þá bara commentið þið ;)

arty mynd =) (6 álit)

arty mynd =) flott mynd af píanói

Bassaklarinett (11 álit)

Bassaklarinett Vegna þess að ég hef í gegnum árin séð lítið annað myndefni heldur en rafgítara, rafbassa og trommusett hér inni á /hljóðfæri þá ákvað ég að senda eina mynd af fjórum bassaklarinettum til tilbreytingar.

Frá vinstri:
- Leblanc L400
- Selmer USA 1430P
- CZ E. M. Winston
- Leblanc 330S

Fólk sem veit lítið um tréblásturshljóðfæri heldur oft að bassaklarinett séu eins konar saxafónar, en þessi hljóðfæri eru gjörólík - Hönnun saxafóna er „kónísk”, þ.e.a.s., frá munnstykkinu niður í hljóðfærið eykst borvíddin jafnt alla leið. Hönnun klarinetta er „symmetrísk”; frá munnstykkinu að bjöllunni er borvíddin jöfn, og bjallan er kónísk. Bjöllur bassaklarinetta eru oftast úr málmi, vegna þess að trébjöllur eru mjög erfiðar í framleiðslu, og rándýrar. Þær eru oftast uppsveigðar, til þess að auðveldara sé að sitja með hljóðfærið, og til að hljómurinn berist meira fram á við. Þegar staðið er með bassaklarinett er mælt með að notuð sé breið og mjúk hálsól, og þegar setið er með það er oftast pinni festur við bjölluna sem er látinn standa við gólfið til að auðvelda við spilamennskuna (það er vesen að spila þegar þumalfingur hægri handar heldur uppi fjórum kílóum).

Hljóðfærin tvö vinstra megin á myndinni spila niður á Des (lítil þríund fyrir neðan djúpa-E á gítar) og hin tvö sem eru hægra megin spila niður á B[es] (minnkuð fimmund fyrir neðan djúpa-E á gítar). Algengast er að ódýrari hljóðfæri spili niður á D eða Des og dýrari hljóðfæri spili niður á B[es]. Dýrari hljóðfæri, eins og nr. 1, 3 og 4 frá vinstri, eru oftast smíðuð úr afrískum svartviði eða ebóníviði, en ódýrari hljóðfæri eins og nr. 2 frá vinstri eru oftast smíðuð úr „resin”, sem er tegund af hörðu gúmmíi. Verðlag svona hljóðfæra er nokkurn veginn á bilinu 50.000 kr. (sum bandarísk resinhljóðfæri) upp í 1.000.000 kr. (Stephen Fox viðarhljóðfæri frá Kanada). Toppurinn í bassaklarinettunum er talinn vera þau frönsku Buffet-Crampon Prestige og Henri-Selmer Privilege og hljóðfæri hins ensk-kanadíska hljóðfærasmiðs Stephen Fox.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok