Gleymt lykilorð
Nýskráning
Hljóðfæri

Hljóðfæri

7.027 eru með Hljóðfæri sem áhugamál
113.284 stig
384 greinar
39.628 þræðir
105 tilkynningar
4.188 myndir
968 kannanir
254.447 álit
Meira

Ofurhugar

HoddiDarko HoddiDarko 1.490 stig
Diddii Diddii 1.040 stig
Tjeko Tjeko 966 stig
negrasvikari negrasvikari 832 stig
Noisemaker Noisemaker 826 stig
Addni Addni 820 stig
HlynurS HlynurS 814 stig

Stjórnendur

Gold anodized pickguard (43 álit)

Gold anodized pickguard Einn af mínum uppáhalds stratocasterum í útliti er 1954 stratinn hans David Gilmour með serial nr #0001.

http://2.bp.blogspot.com/_nqDrJsvdPdc/TFXPpNNirII/AAAAAAAACeE/kSCY3EkvlX4/s1600/S4w-GTSW-023-DavidGilmour'sFenderStratocaster%230001.jpg

Mér hefur alltaf langað til að prófa þetta lúkk þannig að ég tók mig til og keypti Gold anodized pickguard og skellti á Stratinn minn sem Gunnar Örn smíðaði.

Ég er bara helvíti sáttur með útkomuna en svo tekur við sirka 50 ára stíf spilamennska til að ná þessu flotta relic lúkki eins og á gítarnum hans Dabba ;)

Hvað finnst ykkur?

Kv Gunni

Gibson C (11 álit)

Gibson C Hvað í fjandanum er málið. Afhverju er þessi gítar svona ótrúlega dýr.
Ég var svoldið að pæla í þessu hvað í þessum gítar gerir hann 3700000kr virði?

Nýtt (9 álit)

Nýtt Þar sem að enginn er að senda inn myndir sendi ég bara inn mynd af dóti sem ég fékk me´r um daginn.

Ovation Celebrity CC 057 rafmagns kassagítar. Hefur allveg virkilega lengi langað í Ovation kassagítar svo að þegar mér bauðst þessi þurfti ég bara að stökkva á hann. Mjög þægilegt að spila á hann og ótrúlega fallegur hljómur þegar hann er plöggaður í magnara. Ekki miklir töfrar í gagni þegar han ner unpluggaður en ég drep hljóðið í honum hvort sem er með því að tuna hann í C# til að fá extra lágt action og þægilega spilun. Elska að nota þennan gæja til að semja þung riff til dæmis, æfa fingraplokkið, og bara til að spila uppí sófa og heyra almennilega í mér.

Var liðið allveg heilt ár síðan að gamli kassagítarinn minn var svikinn frá mér svo að ég hef verið að nota þennan virkilega mikið.

Barriemore Barlow (3 álit)

Barriemore Barlow Þetta er trommuleikarinn úr Jethro Tull sem er besti trommuleikari sem ég hef heyrt í

“the greatest rock drummer England ever produced” John Bonham
http://en.wikipedia.org/wiki/Barriemore_Barlow

Mæli með því að þið kynnið ykkur hann ef þið vitið ekki hver þetta er :)

Svo svalt…að ég á ekki til orð (21 álit)

Svo svalt…að ég á ekki til orð Sá þetta og fannst þetta eiginlega of svalt til þess að geta lýst með orðum.
Langaði líka svolítið að losna við sharkfininn :P

En hvað segja menn?

DR Neon strengir (26 álit)

DR Neon strengir Fyrir utan það að þetta er ótrúlega svalt þá á húðin sem lýsir líka að láta strengina endast lengur. Mun vafalaust prýða mína bassa þegar þeir koma út. Já, og það koma líka Neon strengir fyrir gítar.

Mitt sett (47 álit)

Mitt sett Áður en þið farið að væla fyrir stærð eða meðferð nokkra diska vil ég segja að ég missti annað æfingarhúsnæiðið mitt(sem innihélt helminginn af settinu)og hljómsveitin hefur ekki æft í hálft ár(förum að byrja aftur) og þar sem ég plássið er lítið í þessu húsnæðið ákvað ég að setja það með hinu.
Ástæðan fyrir því að á nokkrar trommum hafa mikið af klósettpappír og límband er til að bæta soundið(enda eru skinnin ekki góð).
Það eru 2-3 diskar sprungnir þarna en það er ennþá fít hljóð í þeim, fer samt að henda/selja sumt af þessu.
Já, og ég blandaði tveimur gömlum tom við þetta sett því ég hafði ekkert með það að gera, ég lakkaði það en er ekki eins á litinn og hitt.
Myndin var tekin síðasta daginn sem þetta var svona, er búinn að færa það og skipta því.

Þetta er Pearl Export Series(líka gömlu).
Trommurnar
Snerlar: 2x 13“ og einn Sonor 10”(notaður sem tom) snerla, Toms(frá vinstri til hægri): 16“, 12”, 10“, 12”, 13“, 13”, 14“ og 16”.
Bassatrommur: 2x 22“

Cymbalar
Crash: 14” Meinl Amun, 14“ Meinl Mb8, 18” Meinl Rakes og 19“ Meinl Amun
Ride: 20” Meinl MCS og 20“ ómerktur
Hihat: 14” Meinl MCS, 14“ Meinl Classic og 11” úr 2 styttuðum diskum
China: 12“ Meinl Generation X Filter, 12” Dream, 16“ Meinl Classic og 20” Lion
Splash: 8“ Meinl Amun, 8” Meinl Mb8 10“ Meinl Classic og 12” Meinl Headliner
Bell: 8“ Meinl Classic
Síðan er ég með 12” ómerktan disk sem ég veit ekkert hvaða gerð er eða hvað hann heitir, fékk hann gefins frá Ívari í Rúnir.

Auka: Kúabjalla, 2 tambúrínur og þríhyrningur sem sést ekki á myndinni.

Ég nota Sonor, Gibraltar og Pearl Hardware. Grindin er Pearl.

Kickerar: 2x single Pearl, Pearl Doublekicker og Sonor kicker.

Kem síðan einhverntímann í sumar með settið í hlutum(er búinn að skipta því í þrennt, er með eina bassatrommu í viðbót)

Gibson Shark fin (9 álit)

Gibson Shark fin Þessi kom út í fyrra frá gibson sem limited run. Bara örfáir voru gerðir og þeir eru núna nánast ófáanlegir. Sá á einhverju forumi að Gibson ætlaði að gera 350 en þurftu á endanum að gera 40 vegna kreppunar og það að það flæddi inní verksmiðjuna hjá þeim. Er ekki frá því að á sama tíma hafi verið að lögækja þá fyrir að nota ólöglegan við svo að þetta er nokkuð eðlilegt ákvörðun.

En já, þetta er eiginlega bara Gibson Explorer með cut out og nokkrum litlum breytingum.
Persónulega finnst mér hann full líka Van halen hárkarlinum: http://www.vintagekramer.com/Ed/guitar-destroyer.jpg sem var búinn til úr Ibanez Destroyer.

Svo finnst me´r þetta líka bara kjánalegt múv hjá gibson, gera einhvern frekar random gítar sem er bara engann veginn í stíl við flest sem þeir gera. Afhverju ekki að setja Kramer merki á headstockið og láta þá um að selja hann?
Það er satt að V gítarinn og Exploerinn voru óvinsælir þegar þeir komu út og náðu engum vinsældum fyrst um sinn en í dag eru þetta meðal þekktustu rokk gítara, en þetta er bara einvhernveginn ekki að gera sig að mínu mati.
Fýla samt tunerana.

Verðið á honum er auðvitað líka út í hött en hann var víst á rúma 2500 dollara þegar þeir voru að selja hann.

Fleiri upplýsingar hérna: http://www2.gibson.com/Products/Electric-Guitars/Designer/Gibson-USA/Shark-Fin.aspx

Telecaster Rosewood (7 álit)

Telecaster Rosewood Til sölu eru tveir rafgítarar í skiptum fyrir nýlegar Mac fartölvu-r, annars vegar G&L s500 USA made kr. 150 þúsund, og hins vegar Rosewood Telecaster handsmíðaður (G-Örn) kr. 350 þúsund.

Jens s. 862-7898

Rokkdót. (13 álit)

Rokkdót. Þetta eru græjurnar sem ég notaði á tvennum tónleikum á Listasafni Reykjavíkur fyrir stuttu.

Gítarinn er Japanskur Fender Jazzmaster sem er búið að setja Seymour Duncan Antiquity pickuppa í og magnarinn er Gibson Minuteman frá 1965.

Með þessu var ég að nota Maestro Echoplex tape delay, volumepedala og Fulltone Ultimate Octave fuzz.

Á myndina vantar pínulítinn Korg Monotron analogsyntha sem ég var með tengdann inn á aðra rás á Echoplexinu.

Ég hef aldrei nokkurntímann náð betra sándi en þetta á tónleikum, þetta eru algjörlega sick græjur en ég held að ég verði samt að fá mér annann magnara til að nota á tónleikum, ég væri alveg eyðilagður ef eitthvað kæmi fyrir þennann.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok