Gibson Shark fin Þessi kom út í fyrra frá gibson sem limited run. Bara örfáir voru gerðir og þeir eru núna nánast ófáanlegir. Sá á einhverju forumi að Gibson ætlaði að gera 350 en þurftu á endanum að gera 40 vegna kreppunar og það að það flæddi inní verksmiðjuna hjá þeim. Er ekki frá því að á sama tíma hafi verið að lögækja þá fyrir að nota ólöglegan við svo að þetta er nokkuð eðlilegt ákvörðun.

En já, þetta er eiginlega bara Gibson Explorer með cut out og nokkrum litlum breytingum.
Persónulega finnst mér hann full líka Van halen hárkarlinum: http://www.vintagekramer.com/Ed/guitar-destroyer.jpg sem var búinn til úr Ibanez Destroyer.

Svo finnst me´r þetta líka bara kjánalegt múv hjá gibson, gera einhvern frekar random gítar sem er bara engann veginn í stíl við flest sem þeir gera. Afhverju ekki að setja Kramer merki á headstockið og láta þá um að selja hann?
Það er satt að V gítarinn og Exploerinn voru óvinsælir þegar þeir komu út og náðu engum vinsældum fyrst um sinn en í dag eru þetta meðal þekktustu rokk gítara, en þetta er bara einvhernveginn ekki að gera sig að mínu mati.
Fýla samt tunerana.

Verðið á honum er auðvitað líka út í hött en hann var víst á rúma 2500 dollara þegar þeir voru að selja hann.

Fleiri upplýsingar hérna: http://www2.gibson.com/Products/Electric-Guitars/Designer/Gibson-USA/Shark-Fin.aspx
Nýju undirskriftirnar sökka.