Jújú þið heyrðuð rétt. Af gefnu tilefni hef ég ákveðið í samráði við Vefstjóra að bjóða ykkur notendum að sækja um sem stjórnendur á þetta yndislega áhugamál.

Síðustu mánuði hef ég verið einn hérna að sjá um að samþykkja myndir, greinar og tengla. Reyndi meira að segja að hafa sumar áskorun sem að gekk frekar brösulega. Þess vegna hvet ég ykkur til þess að sækja um og aðstoða mig við að hleypa smá lífi í /heilsa.

Það eru 2 stöður opnar.

Bætt við 9. september 2008 - 13:11
Kröfurnar eru þær að þið séuð virkir og lágmark 16 ára gamlir. Veit ekki hversu hart er tekið á því samt.