Skyggnst inn í hugarheim konu í megrun. „Ef einhver hefur áhuga á meðaltölum frá Evrópu þá er mittismál meðalkonunnar þar víst rúmlega 86 sm. Mjaðmamál hennar er tæpir 100 sm og brjóstamálið tæplega 98 sm. Meðalhá kona í Evrópu er núna 167–168 sm. (Ég mældi mig áðan, þegar betri helmingurinn sá ekki til, og get fullyrt án þess að ljúga nokkru að ég er alveg dæmigerð Evrópukona – á hæð.) “ - Léttir.