Ég, feb til maí Um áramótin var ég nálægt 110 kg og ákvað að fara að taka mig á, byrjaði að fara út að skokka og borða hollara. Í febrúar keypti ég svo kort í ræktina og hef farið mikið þangað síðan þá og út að skokka einnig.

Myndin til vinstri er tekin 28. febrúar og þá var ég um 103 kg en myndin til hægri er glæný, tók hana bara rétt áðan 22. maí og er um 88 kg núna.

Tók líka myndir af bakinu, hérna er linkur á það: http://i49.tinypic.com/10dfk0j.jpg

Með bakið þá er vinstri myndin tekin í byrjun apríl þegar ég var um 98 kg, myndin til hægri er tekin bara núna 22. maí.

Er nokkuð sáttur með þennan árangur og hlakka til að ná lengra í sumar.