ég er byrjuð í ræktinni og er á prógrammi 4 sinnum í viku og fer svo þegar ég vil bara, og búin að taka mataræði í gegn og alles.
eruði með einhver tips um hvað er virkilega góð brennsla, þarf helst að missa 15 kíló, hvað er svona raunhæfur tími til að missa það? langar voðalega að vera komin í fínt form fyrir sumarið, en ég geri mér vel grein fyrir því að ég er örugglega ekki að fara að missa 15 kíló á 3 mánuðum haha
ég er 18 ára, 168 á hæð og 74 kíló (ég veit, vá), fituprósentan er 31% (ef þetta hjálpar eitthvað :))
og þetta er eiginlega nýkomið á mig, gekk í gegnum mjög slæmt tímabil í fyrra og borðaði bara nammi og var étandi allan daginn svo ég þyngdist um rúm 10 kíló.. ef það hjálpar líka hahah
væri geðveikt ef þið gætuð komið með einhver tips eða jafnvel uppkast að smá plani :)

veit þetta er allt í rugli, er eitthvað voðalega léleg í að skrifa núna, spurjið mig bara ef þið fattið ekki eitthvað sem ég er að meina þarna

taaaakk!