Já góðann daginn, ég hef verið að lyfta svolítið mikið undanfarið ár og náð mjög góðum árangri í þyngdum. En ég var að pæla í að breyta aðeins til núna og hætta að lyfta endilega bara þungt í fáum reps og prufa hluti eins og Kettlebells og Cross-Fit, eitthvað sem kemur mér í mjög gott alhliða form, því ég hef fundið að ég er að detta úr hlaupaformi og annað. En spurningin mín er eiginlega sú, hversu mikið á það eftir að bitna á ÚTLITINU, þar sem ég tek því svolítið alvarlega, og er kominn með ágætlega svona fit líkama.
Byggir t.d. kettlebells eða cross-fit einhvern vöðvamassa samanborið við þessar hefðbundnu lyftingar, þar sem að cross-fit t.d. fókusar svo mikið á alhliða styrk? eða á massinn eftir að minnka eitthvað ef ég breyti um lyftingaraðferðir. Ég tek t.d. 100 í bekk, 180dedd og 140 hnébeygju, eru þetta tölur sem myndu breytast til hins verra?