Er einhver hér sem er eða hefur prófað að fara á Cave man diet? Og hvernig fannst ykkur það?

Fullt af rusl upplýsingum um Cave man diet á netinu þar sem verið er að segja manni að svelta allan daginn og éta svo bara allt sem þú vilt um kvöldið, e-ð sem ég er ekki að taka mikið mark á, þannig að það væri ágætt ef einhver hér myndi koma með dæmi um það sem hann borðar. Ég veit að ég get séð fullt af dæmum á netinu hvað maður á að borða á þessu mataræði, en ég vil fá að heyra frá ykkur, hvað þið eruð að borða.

Ég veit að margir MMA gaurar og Judo gæjar eru á þessu mataræði og virkar mjög vel fyrir þá þar sem þeir léttast en halda sama styrk.
Undirskriftin mín