Sæl öll sömul.
Já, ótrúlegt en satt þá veit ég að það eru til aðrar stöðvar en World Class. En þar með líkur þekkingu minni.

Ég var að spá í hvort þið gætuð nefnt minni stöðvar sem eru samt með góða þjónustu eða eithtvhað sem er eftirsóknarvert (má vera lakari aðstaða en góðir þjálfarar), góður mórall, góð kjör, sérhæfni etc.

Ef þið gætuð einnig látið fylgja með hvar þessar stöðvar eru staðsettar. Ég hjóla þannig að það væri fínt ef þær væru í kring um 105, sama í hvaða átt.

Með fyrirfram þökk!