Jæja mig vantar smá hjálp hérna.

Málið er að ég er nýflutt til Reykjavíkur og er að leita að einhverri líkamsræktarstöð sem er með svona hóptíma, helst Body Step.

Ég er búin að vera að leita að þessu á netinu en þetta er allt svo fáááránlega dýrt!!
Þar sem ég bjó úti á landi gat ég fengið mánaðarkort á 5000 kr! (á að vera á 8100 en 5000 ef þu ert í skóla.)
Og við erum að tala um það að það var engin samkeppni í gangi á milli aðila þar sem þetta var eini staðurinn í bænum með svona tíma, þannig þau gátu haft verðið hærra ef þau vildu.

En já, back to the subject, ég er semsagt að leita að frekar ódýrri stöð sem kennir Body Step, eða eitthvert annað svipað hresst prógramm:D

Vona að einhver geti hjálpað mér:)