Regluleg hreyfing og hollt matarræði er líklegast það besta sem þú getur gert fyrir ónæmiskerfið. Einnig getur þú forðast ýmsa hluti eins og ofdrykkju (þó að áfengi sé holt í hófi), tóbaksreykingar o.fl. Ef þú ferð út að hjóla þér til heilsubótar getur það skipt máli hvar þú gerir það. Í kringum aðalumferðaræðar er mikið svifryk og því ákjósanlegra að notfæra sér útivistarsvæði (ef þú býrð í miklu þéttbýli allavega, efast um að þetta sé eins mikið vandamál utan stærstu þéttbýlisstaðanna).
Einnig hef ég lesið að jákvætt hugarfar og virkt félagslíf virðist hafa jákvæð áhrif á ónæmiskerfið og sitthvað fleira.