Jæja, þá er maður í heilsuátaki eina ferðina enn svona á nýju ári. Ég veit allt um það hvernig maður á að haga því, en málið er að ég er alltaf svöng. Ég borða reglulega svona 5x á dag, passa matarskammtana en er samt að borða alveg feiki nóg en það virðist samt ekki vera nóg. Hungurverkirnir eru að drepa mig stundum. Hvað í ósköpunum get ég gert?