Jæja, kæru mörgæsir þarna úti!
Hvernig væri að stofna smá stuðningshóp hér á heilsunni, til þess að hjálpa hvert öðru í þessari eilífu baráttu við bölv…. spikið.
Ég veit ekki hvernig best er að gera þetta, en ákvað að koma allavega með þessa tillögu.
Á fimmtudaginn 4.1. ætla ég að hefja mína baráttu, þarf að losna við allavega 40 kg! Eru ekki einhverjir þarna úti sem gætu hugsað sér að berjast með? Þá er ég ekki að tala um þá sem eru svo gæfusamir að þurfa ekki að losna við nema 2-5 kg, heldur frekar 20+. Hallóóóó!!! Reynum að snúa þessu upp í skemmtun en ekki martröð, (sem megrun er yfirleitt) tökum okkur í gegn og höfum gaman að því.
Ok. Mitt vandamál er nammi og hreyfingaleysi, gæti sleppt því að borða mat, bara ef ég fæ súkkulaði!
“Re nr 1” hvað er þitt vandamál?
Aldamótamörgæsin.