Ég mæli með að allir horfi á þessa heimildamynd frá 2006 um CIA. Hún var sýnd á bresku Sky sjónvarpsstöðinni og í henni er m.a. talað við fyrrverandi CIA leyniþjónustumenn.

Secrets of the CIA

Það er vel skjalfest að leyniþjónusta Bandaríkjanna hefur brotið hefðbundin hegningarlög, lög stjórnarskrárinnar og almenna stríðssáttmála.

Hér er um að ræða svokallaðar “svartar aðgerðir” eða “black operations”. Orðið “svart” táknar hér “ólöglegt” og “undirheima-” eins og maður þekkir frá hugtökum eins og “svartir markaðir”.

Sumt af því sem kemur fram í heimildarmyndinni gæti hljómað ótrúlega en það sem þar kemur fram er í dag vel skjalfest. M.a. hafa þeir framkvæmt mannrán á fólki fyrir utan BNA sem hafa verið ólöglega fangelsuð, pyntuð og líflátin. Þeir hafa framið mannrán á Bandarískum ríkisborgurum í því skyni að fremja ólöglegar tilraunir á mönnum. Þeir hafa tekið þátt í drefingu á heróíni, ópíum og kókaíni. Þeir bera ábyrgð á dauða milljóna manna vegna hernaðarlegs og fjárhagslegs stuðnings við einræðisherra og dauðasveitir og hafa í raun gefið beinar skipanir um líflát á borgurum í hundruðum þúsunda talið (Indónesía).

Litið á þetta efnislega þá hefur leyniþjónusta BNA stutt og tekið þátt í ólöglegum manndrápum og fangelsum, morðum, pyntingum, hryðjuverkum, mannránum, ólöglegum tilraunum, eiturlyfjadreifingu, yfirhylmingu stríðsglæpamanna og kerfisbundnu niðurrifi á frelsi, lýðræði og lífsgæðum í mörgum löndum.

Það er hægt að finna skjöl um þetta ef vilji er fyrir því.

T.d. eru hérna skjölin um ólögleg mannrán og tilraunir á mönnum innan Bandaríkjanna:

http://www.michael-robinett.com/declass/c000.htm

Ég ætla ekki að linka í allt efni sem kemur fram í heimildarmyndinni en það þá má vel finna heimildir fyrir öllu sem fólk vill skoða frekar.

Til að öll formsatriði séu á hreinu þá er þessi útgáfa myndarinnar ekki ólögleg að minni vitneskju: “Secrets of the CIA” is a fascinating 45-minute Turner Home Entertainment documentary made available for free viewing by Google.