Ég hef bætt kubbinum “Server listinn” inn fyrir neðan kannarnirnar. Tilgangurinn með honum er að safna saman á einn stað hvar allir notendurnir hérna á /blizzard spila. Meginástæðan var sú að “Hverjir spila á ******??!” korkarnir voru heldur… tjah, pirrandi. :)
Ég vona að þetta muni virka “as intended”, en það mun bara koma í ljós.

Ég vil líka bæta við að ég gæti verið fjarverandi eitthvað í næstu viku því að tölvan mín er búin að vera mikið í viðgerð undanfarið, svo að ég bið ykkur um að sýna þolinmæði í þessu. ;)