Sælt veri fólkið

Ég og félagi minn ætlum að búa til Horde karaktera á PvP server núna um hátíðarnar og spila þá alltaf saman. Þ.e. að spila þá aðeins þegar við erum báðir on-line.

Hann hefur ákveðið að taka Troll Shaman og er ég þess vegna að velta því fyrir mér hvaða class virkar best með Shaman.

Við ætlum að byrja á sama stað þannig að það er annaðhvort Troll eða Orc. Classarnir sem um er að ræða eru þá: Warrior, Hunter, Rouge, Priest, Shaman, Mage og Warlock.

Er Warrior eða Rouge best með Shaman?
Hvernig virkar Shaman/Shaman duo?

Takk fyrir svörin fyrirfram og gleðilega hátíð.