Ég vil bara hvetja alla þá sem eru að byrja að spila leikinn eða hafa áhuga á að starta nýjum kalli að koma á Aggramar alliance. Fyrir ekki svo löngu ákváðu nokkrir strákar að koma saman á þessum server og byrja uppá nýtt, margir hverjir höfðu keypt leikinn á eftir félögum sínum og nenntu ekki að vera langt á eftir.

Núna erum við orðnir þó nokkrir íslendingar og sá hæðst lvlaðasti hjá okkur er lvl 30. Margir eru á bilinu 20-29 og slatti frá 10-19.
Þett er góður hópur og er hann mjög hjálplegur allavega sem komið er. Menn hjálpast mikið að og fara menn saman í instöns og BG sem er alveg magnað.
Ég vil bara segja við menn að það er alls ekki of seint að koma inn því það bætast oftast 1-2 á hverji viku.

Endilega wispiði mér bara ef þið viljið vera með okkur.

Race: Night Elf
Class: super Druid
Pro: LW