Jæja, hverjir eru sammála mér með að EULA dótið sem kemur í hvert skipti sem maður patchar er f-king pirrandi? Ekki nóg með að það komi alltaf aftur, heldur þarf maður að skrolla alla leið niður til að ýta á accept, og ef maður var of fljótur að skrolla resettast það bara aftur! Ég veit ekki með ykkur en ég er orðinn ansi pirraður á þessu. Vitiði annars hvað maður þarf að bíða lengi með að ýta á accept?
Peace through love, understanding and superior firepower.