Sælir/ar,

Búin að vera löng helgi og ég loksins búinn að lesa alla kortakana. En þegar ég sá kork sem heitir “Ogres og High Elfs” fékk ég hugmynd.

Hvernig væri að hafa það þannig að maður getur hent sér úr alliance… orðið óvinur þeirra og vinna sér þannig inn smá reputation hjá horde með því að drepa Alliance kalla. Semsagt þegar sérstakur player ákveður að hætta að fylgja The Alliance verður hann óvinur bæði Alliance og horde… en getur aftur unnið sér inn reputation hjá annaðhvorum… þetta þyrfti að vera langt process og það þyrfti að taka hann langann tíma að gera kannski svona “slave” quest fyrir horde(fyrst þeir hata alliance þyrti maður kannski að fara og sanna að maður hatar Alliance og koma kannski með nokkra hausa af sérstökum persónum.)

Allavega þetta er bara hugsun sem ég var að fá… ekki búinn að pæla mikið í þessu þannig reynið að halda álitunum í jákvæðari kanntinum.