Ég er hingað til búinn að vera að spila bara hreinan WoW með engu addoni, en það er farið að vera nett pirrandi að hafa t.d. svona lítinn action bar, svo ég var að spá í að fá mér eitthvað gott mod.. En ég veit ekki hvert af þessum nöfnum sem ég hef heyrt (CTMod, Insomniax, TitanPanel, Cosmos, GypsyMod etc) er þægilegastur.. svo það væri vel þegið ef þeir sem hafa prófað fleiri en eitt af þessum moddum gætu mælt með einhverju, jafnvel nefnt kosti og galla einstakra modda… Ég vil helst eitthvað sem fyllir ekki allan skjáinn af drasli sem er fyrir manni en stækkar action bar. Timer á buffs og debuffs væri gott líka. Og raid gaurar einhversstaðar annarsstaðar en í Social :/

Fyrirfram stórt takk! :)
Peace through love, understanding and superior firepower.