Þetta byrjaði allt þegar að ég sá orkann minn fyrir framan mig á skjánum. Með vonarneista í augunum ætlaði hetjan okkar, Azgrax, að “meika” það. Ég ákvað að gera hann veiðimanni (hunter) því að ég heillaðist af hinum mikla (ranged) skaða sem að þeir gætu gert og með möguleikann á gæludýri við hliðina á mér yrði ég óstöðvandi.

Hann hóf leikinn í Valley of Trials, sem er byrjunarsvæði orka og trölla. Á ferðum sínum í gegnum dalinn hitti Azgrax tröll sem gekk undir nafninu Hana'zua, sem var særður. Illræmdur sporðdreki hafði ráðist á hann og vildi Hana'zua að ég dræpi þetta stórhættulega kvikindi. Fór Azgrax þá í hefndarhug að leita að sporðdrekanum og fann hann fljótlega vegna þess hversu góður hann var í að rekja spor dýra (tracking skills). Tók Azgrax þá upp bogann sinn og miðaði. Örin flaug beint í annað augað á sporðdrekanum og negldi hann við jörðina. Fór þá Azgrax með öxina sína, hjó af honum klærnar og tók þær með sér til Hana'zua. Hetjan okkar fékk vegleg verðlaun og hélt aftur af stað úr dalnum í leit að frægð og frama.

Nú lá leið hans til Sen'Jin þorpsins, heimkynni tröllanna. Fyrir utan þorpið voru sjávardýr og kentárar sem hann drap með offorsi þar til tröll að nafni meistari Gadrin kom að tali við hetjuna okkar. Sá bað Azgrax um að fara til Echo Isles (sem að flest ykkar muna eftir úr WC3 TFT) til að drepa hinn hræðilega galdralækni (witch doctor) Zalazane, því að hann hafði drepið bróður hans. Azgrax þurfti líka að frelsa bróður Gadrins, því að Zalazane hélt anda hans fönguðum.

Synti þá hetjan okkar yfir í Echo Isles og vó þar hvert tröllið á fætur öðru þar til hann sá Zalazane. Tók hann þá upp bogann sinn og miðaði vel og vandlega. Í þetta skipti fór örin í gegnum lófann á vinstri hönd Zalazanes. Trylltist þá hinn illi voodoo meistari og réðst gegn Azgraxi. Hann átti eftir að sjá eftir þessum mistökum því að Azgrax vó hann með svakalegum tilbrigðum. Hann beygði sig einmitt þegar að Zalazane hjó í áttina að honum og kláraði hann svo af með því að höggva í höfuðkúpuna á honum, rétt fyrir ofan eyrað. Fór þá hetjan okkar að bæli þessa Zalazanes og náði þar í hauskúpu, sem að var af bróður Gadrins og hélt af stað með hauskúpu í annari hendi og tröllahaus í hinni í áttina að Sen'Jin village, ánægður með sig og brosandi út að eyrum.

Þegar að hann svo kom til Sen'Jin sýndi hann öllum hausinn af Zalazane og fékk fyrir vikið vegleg verðlaun og komst meira að segja upp á næsta stig (level), eða nr.10. Ákvað hetjan okkar þá að skoða nýju hæfileikana (talents) sína. Hann kaus að velja skotfimi (marksmanship) og var þá orðinn mjög öflugur.

Eftir svolitla stund hitti hetjan okkar verkamann (peon) sem var í vandræðum og bað sá Azgrax um að bera fyrir sig matarbirgðir til þorpsins Razor Hill. Bar Azgrax þennan risastóra og þunga poka á bakinu langa vegalengd í hjálparskini. Svo blasti við honum Razor Hill, þorp iðandi af lífi og ánægju og fór hann með pokann til hótelsins. Eftir þennan viðburðarríka dag ákvað hetjan okkar að fara að sofa og halda ævintýrunum áfram síðar.

Takk fyrir.