Gleymt lykilorð
Nýskráning
Bílar

Bílar

8.437 eru með Bílar sem áhugamál
56.692 stig
585 greinar
12.027 þræðir
56 tilkynningar
11 pistlar
3.597 myndir
920 kannanir
111.282 álit
Meira

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.052 stig
KITT KITT 1.632 stig
Aiwa Aiwa 1.094 stig
JoeyThunder JoeyThunder 866 stig
stakka stakka 622 stig
JHG JHG 498 stig
flat6 flat6 466 stig

Stjórnendur

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr afturendi er ein af breytingunum sem voru gerðar á síðustu hundrað TVR Griffith bílunum sem smíðaðir verða. Það er sorglegt að sjá einn magnaðasta sportbíl síðasta áratugar hætta í framleiðslu þrátt fyrir að nýjar gerðir taki við. Meiri upplýsingar og myndir um sögu TVR Griffith: http://www.pistonheads.com/tvr/griffith/

Athugið líka tenglana á Griffith kúpubakinn.

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta er bíll Tommy Makinen eftir rosalegan árekstur við vegrið í dag á Korsíku. Við áreksturinn kom upp eldur í bílnum sem valt á toppinn og rann áfram eftir veginum og stöðvaðist að lokum á snarbrattri klettabrún. Makinen komst út úr bílnum við illan leik meiddur í baki en aðstoðarökumaður hans sat fastur. Bíllinn stóð svo tæpt á klettabrúninni að menn lögðu ekki í að losa hann úr bílnum fyrr en búið var að binda bílinn fastan við annan bíl ofar á veginum og glittir í kaðalinn vinstra megin á myndinni. Eins og sést á myndinn er framendi bílsins að mestu leyti horfinn en Tommy og aðstoðarökumaður hans reyndust ómeiddir ef undan er skilin tognun í baki.

Bilar (0 álit)

Bilar Honda NSX-R eins og hann var sýndur á Tokyo bílasýningunni. Ég verð að segja að hann leit betur út áður en húddið er áhugavert og myndi aldrei virka nema með nýju ljósunum. Afturvængurinn er ekki vel heppnaður. Tekið af www.4car.co.uk þar sem má sjá fleiri myndir og fréttir frá sýningunni.

Bilar (0 álit)

Bilar Mazda RX-8 en lokaútgáfa bílsins verður sýnd á Tokyo Motor Show 2001 en hún hefst 27. okt nk. RX-8 er 4 dyra coupe með nýrri Wankel vél sem skilar 250 hö @ 8500 rpm. Á sömu sýning frumsýnir Mazda einnig 4-dyra millistærðar bíl sem nefnist Mazda Atenza en sá verður seldur utan Japans undir nafninu Mazda 6.

Bilar (0 álit)

Bilar Jaguar R Coupe séður aftan frá á Bílasýningunni í Frankfurt. Takið eftir bensínlokinu neðst í hægra horninu á myndinni. Krómað með 2 athyglisverðum flipum sitthvoru megin.

Egó (0 álit)

Egó Svakalega fallegur BMW 850 með spoiler.

Bilar (0 álit)

Bilar Nokkuð áhugaverð síða sem segir frá reynslu eigenda þessa TVR Cerbera (líklegast 4.2, gæti verið 4.5). Áhugaverðast er kostnaður við að eiga þennan bíl og GPS staðfestur hámarkshraði sem þrátt fyrir að vera ótrúlegur gerir ekki meira en að jafna lostið vegna kostnaðarins.

http://web.ukonline.co.uk/pikeynet/stuff/runningcosts.htm

Bilar (0 álit)

Bilar Í lok október munu mörlandar eiga möguleika á að skoða og jafnvel kaupa nýja Honda Civic Type-R. Umboðsaðilinn, Bernhard, virðist allavega vera viss um að bíllinn sé fremstur meðal jafningja og víst er að á blaði slær honum engin þeirra við. Það verður þó gaman að sjá hvort þessi bíll nær viðlíka vinsældum og bíllinn sem hann leysir af hólmi, Civic VTi.

Bilar (0 álit)

Bilar Það fyrsta sem manni dettur í hug eftir að maður verslar sér Porsche Boxster er að smella hjólagrind ofan á toppinn…..

Bilar (0 álit)

Bilar Þessi skýrir sig alveg sjálf…..
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok