flottur ekki satt
Subaru STX hugmyndabíll sem var kynntur af Subaru á The Los Angeles Auto Show árið 2000. STX stendur fyrir Subaru Truck Experimental en segja má að bíllinn sé að miklu leiti byggður á grunni Subaru Outback og þar að auki knúinn áfram af breyttri útgáfu af 2500 cm3 Outback vélinni sem er komin með supercharger í þessari útfærslu sem tryggir 230 hö.
Mazda Cosmo var fyrsti bíll Mazda sem notaði Wankel eða Rotary vélina. Þetta var 110 hestafla bíll (síðar 128) hestöfl og náði tæplega 200 km hraða. Persónulega finnst mér þetta mjög fallegur bíll og þetta tímabil í sögu japanskra bíla er einkennandi fyrir frábæra hönnun og bíla um margt minnistæða og keimlíka því besta frá evrópu.
Nýr Range Rover. Lítur út eins og… gamall Range Rover! Samt er þetta gersamlega nýr bíll hannaður undir eigu BMW, nú framleiddur undir eigu Ford. Vélar eru frá BMW fyrst um sinn. Kemur áhugamálinu ekki beint við en stórfurðulegt ferli og merkisviðburður. 3. kynslóð Range Rover og nú byggður á sjálfberandi burðarvirku og með sjálfstæða fjöðrun framan og aftan.