Bilar Í lok október munu mörlandar eiga möguleika á að skoða og jafnvel kaupa nýja Honda Civic Type-R. Umboðsaðilinn, Bernhard, virðist allavega vera viss um að bíllinn sé fremstur meðal jafningja og víst er að á blaði slær honum engin þeirra við. Það verður þó gaman að sjá hvort þessi bíll nær viðlíka vinsældum og bíllinn sem hann leysir af hólmi, Civic VTi.