Svakalega fallegur BMW 850 með spoiler.
Það getur verið andskoti flott þegar menn taka sig til og setja aukahluti á bílana þeirra sem gera þá miklu hraðskreiðari eins og t.d. risastór stútur aftan á pústið, taka demparana af bílnum (lækka hann niður) o.s.frv. Hvet alla hondu eigendur að gera þetta við bílinn sinn, enda eru hondur mjög fallegir bílar.
Því meira sem ég skoða gamla Citroën því heillaðri verð ég. Traction-Avant kom á markaðinn 1934, þá framdrifinn með gírkassa fyrir framan vél. Bíllinn var eins og nútíma bílar með sjæalfberandi yfirbyggingu. Fjöðrun var “torsion bar” að framan og aftan sem tryggði þægindi, góða aksturseiginleika og óviðjafnanlegt veggrip á sínum tíma þótt stýrið hafi á móti þótt nokkuð þungt. Útlitið sæmir líka Citroën, einfalt, elegant og framúrstefnuleg og hef ég heyrt að hann hafi verið hannaður af Bertone - manninum en ekki hönnunarhúsinu!
Honda NSX hefur í seinni tíð fallið í skuggann af Nissan Skyline og finnst mér á NSX hallað þar. Ég er ákaflega hrifinn af ál-ofurbíl Honda og hann er þess heiðurs aðnjótandi að vera á listanum mínum yfir þá bíla sem væru draumabílar ef Porsche 911 væri ekki til :)
Fyrstu myndir sem nást af TVR Tuscan R hef ég af Pistonheads.com sem fengu þær frá þeim sem tóku þær, TVRCC.com.
BMW hefur staðfest að M3 CSL muni fara í framleiðslu. Að BMW skuli búa þennan bíl til eru einhverjar bestu fréttir frá þeim bæ í langan tíma. Aðalatriðið er að CSL mun treysta á lægri þyngd til að skila afköstum frekar en meira afl. Með því að nota m.a. koltrefjaefni mun CSL verða 200 kg léttari en venjulegur M3 eða einungis 1295 kg. Myndin ásamt frétt er fengin af Autozine og má finna á http://autozine.kyul.net/0_News/Latest/Current/News_frame.htm en áhugasamir um fyrstu staðfestu tölur og upplýsingar um Enzo Ferrari (Ferrari FX/F60) geta fundið ítarlega grein á sömu slóð.