Bilar Fyrstu myndir sem nást af TVR Tuscan R hef ég af Pistonheads.com sem fengu þær frá þeim sem tóku þær, TVRCC.com.

Útlitið er… sérstakt? Ég er enn að jafna mig og sum sjónarhorn virka furðulega en þetta er vissulega einstakur og bíll með útlit sem tekið er eftir.

Afköstin eru líka með því besta sem gerist, a.m.k. ef Tuscan R á að vera öflugri en Tuscan S sem er um 9 sekúndur í 100 mph…