BMW M5 löggubíll í Bandaríkjum Norður-Ameríku
Volkswagen verksmiðjurnar hafa kynnt fyrsta 1 lítra bíl í heimi en unnið hefur verið að hönnun slíks bíls síðan 1999, eða frá því að Volkswagen kynnti fyrst bíl með 3 lítra vél. Markmiðið hjá VW verksmiðjunum er að hanna bílvél sem kemur ökumanni 100 km. á einum bensínlítra á sama tíma og kröfum um þægindi og öryggi er uppfyllt. Í ökuferð sem ekin var frá verksmiðjunum í Wolfsburg til Hamborgar, sem er um 230 km. akstur, eyddi bíllinn, þrátt fyrir slæm veðurskilyrði aðeins 0,89 lítrum á hundraði. Meðalhraðinn á leiðinni var 75 km/klst. (tekið af www.hekla.is)
BMW hefur nú birt myndir af BMW Z4 sem væntanlegur er á markað í Evrópu snemma á næsta ári en seint á þessu ári í USA. Bíllinn verður fáanlegur með 2 vélum, 2500 cm3 sem skilar 192 hö og 3000 cm3 sem skilar 231 hö, en báðar eru þær 6 strokka. Hægt verður að velja á milli 5 gíra handskipts gírkassa eða Steptronic gírkassa á 2500 bílnum en kaupendur 3000 bílsins geta valið á milli 5 gíra Steptronic gírkassa eða glænýs 6 gíra handskipts gírkassa. Um mitt næsta ár verður svo sequential gírkassi (SGG) fánlegur sem aukabúnaður í báðum útgáfum. BMW Z4 verður frumsýndur á Bílasýningunni í París (Paris Motor Show) í september nk.
Subaru Impreza WRC2003. Þá er það komið á hreint. Þetta er nýja lookið á Impreza. Þetta var tilkynnt á bílasýningunni í París sem hófst í morgun en þar voru bæði WRX MY03 og WRC2003 kynntir samkvæmt fréttatilkynningur frá SWRT. Ekki svo galinn frontur en það eru komið einhver Lexus style ljós að aftan sem er alveg út úr kú. Kíkið á fleiri myndir á www.swrt.com
Nýr og endurbættur Toyota Avensis er væntanlegur á markað í byrjun næsta árs. Bíllinn hefur verið tekinn í gegn bæði að innan og utan og á hönnun hans að falla sérstaklega að kröfum evrópumarkaðar þar sem Toyota hefur mikinn áhuga á að auka hlut sinn. Enda er bíllinn hannaður af ED2 hönnunardeild Toyota í Nice en Toyota gerir ráð fyrir að helstu keppinautar í Evrópu verði Opel Vectra, Ford Mondeo og Volkswagen Passat.