Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

snikkers
snikkers Notandi frá fornöld 128 stig

Varúð: Eldri borgarar í umferð ! (35 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég hef svolítið verið að lesa í Mogganum nýverið um gamalt fólk í umferðinni. Þetta byrjaði allt þegar Sonja nokkur ákvað að nú væri hún orðin of gömul til þess að aka um vegi borgarinnar og lagði inn ökuskírtenið sitt. Hún skrifaði grein í Morgunblaðið í kjölfarið og hvatti aðra eldri borgara að gera slíkt hið sama. Einnig stakk hún upp á því að ökuhæfni gamals fólks yrði athuguð reglulega þegar þau hefðu náð vissum aldri. Upp á síðkastið hafa verið sendar inn amk tvær greinar í Moggann þar...

Hverjir eru hættulegastir í umferðinni? (30 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég sendi inn könnun um daginn til þess að reyna að komast að því hverjir væru hættulegastir í umferðinni. Niðurstöðurnar liggja fyrir. Alls kusu 188 manns, og fannst flestum 17 - 20 ára strákar (26%) vera hættulegastir. Í kjölfarið fylgja stelpur með 20%, en þar var átt við almennt stelpur, ekki einhver sérstakur aldurshópur. Konur eldri en 51 árs fengu 19% atkvæða en karlar á sama aldri fengu einungis 5% atkvæða. Svo var valkostur fyrir aumingja sem 21% völdu, en það var að allir væru...

Kjötætur - Hinn gleymdi hlekkur (14 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Grænmetisætur þrífast vel í nútíma samfélagi. Það er hægt að fara á salatbari á mörgum veitingahúsum, hægt að fá grænmetisrétti ýmsa sem og annað æti einungis unnið í metinu græna. Það má segja að tíðin sé betri fyrir grænmetisætur nú, heldur en var fyrir þær á árum áður, þegar þær voru einfaldlega ekki til. Þá víkur sögunni af andstæðu grænmetisætna, svokölluðum kjötætum. Kjötætur hafa verið þekkt fyrirbrygði allt frá tímum risaeðlanna, þó að risaeðlur voru margar hverjar grænmetisætur,...

Verð á bíómiðum (43 álit)

í Kvikmyndir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Sem kvikmyndaáhugamaður reyndi ég í gamla daga eftir mesta megni að fara oft í bíó. En núna eftir að verðið var hækkað upp í 800 kall hef ég ekki gert eins mikið að því, þar sem það liggur við að maður þurfi að spara til þess að komast í bíó. Þessari hækkun, mig minnir að það hafi kostað 600 kall eða eitthvað áður en þeir hækkuðu upp í 800 vegna þess að dollarinn hækkaði, og var í rúmlega 100 krónum. En núna er dollarinn í 78 krónum. Ég spyr, hvar eru ódýrari bíómiðar? Þeir hafa enga ástæðu...

Bandaríkin vs. Írak (80 álit)

í Deiglan fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Vopnaeftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna fínkemba núna Írak í leit að kjarnorkuvonpun og þessháttar skaðræðistólum. Ef þeir sýna ekki fullan samstarfsvilja og/eða gefa frá sér skýrslur sem segja ekki frá öllu, þá jafngildir það stríðsyfirlýsingu. Og það þýðir að Bandaríkjamenn munu flykkjast inní landið og stráfella allt sem fyrir verður. Allt þetta út af einum manni. Osama Bin Laden er náttúrulega gæjinn sem Bandaríkjamenn, með Bush í broddi fylkingar, vilja ná, en þar sem þeir hafa ekki enn...

Landbúnaðarráðherra - Maður fólksins (9 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég var að vinna að sálfræðiverkefni nýverið, sem fól í sér það að ég átti að kanna hvort möguleiki væri á því að í framtíðinni yrðu framleidd vélmenni sem væru gáfaðri en mennirnir. Ég ætlaði að búa til myndband með viðtölum og tilheyrandi. Spurningin var sú, hvert leitar maður ef maður vill taka viðtal við einhver þekkt andlit um jafn fáránlegt mál? Ég byrjaði á að leita til Sigurðs H. Richter, sem allir ættu að þekkja úr þáttunum um nýjustu tækni og vísindi, en hann tjáði mér það að hann...

Viðtal við Sage Francis og MF Shalem B (2 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Nú er komið að því. Viðtölin við Sage Francis og MotherFucking Shalem B hafa verið sett upp á Rökbrotum og rökleysu. Slóðin á Rökbrot er www.GottKaffi.com Ef þið viljið fara beint á viðtölin þá er slóðin á viðtalið við Sage www.simnet.is/helgill/vidtol/sage og við Shalem er www.simnet.is/helgill/vidtol/shalem Skoðið og njótið.

RÚV (7 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Jæja, ég var að svara skoðanakönnun hérna rétt í þessu, einmitt um hvort það ætti að afnema skylduáskriftina. Ég, ásamt 14% þeirra sem hafa svarað, segi nei. Af hverju? Jú, RÚV gegnir mikilvægu hlutverki sem almannavarnaflauta, þ.e. þegar það þarf að almannavarna eitthvað þá sér RÚV um það. Þótt þeir, að mínu mati, sýndu fram á vanhæfni sína í verki á lýðveldisdeginum sjálfum, 17. júní, fyrir nokkru. Hvað sem því líður þá geri ég ráð fyrir því að ráðamenn RÚV hunskist til þess að líta í...

Ibanez TR Series (5 álit)

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég keypti mér bassa fyrir nokkru síðan, óendanlega fallegur rauður 5-strengja Ibanez bassi. Alveg hágæða hljóðfæri og gæti ég ekki verið ánægðari með hann.. Um daginn fór ég að grennslast fyrir um þetta hljóðfæri og reyndi ég meðal annars að finna myndir af honum á netinu.. Það reyndist vera ógerlegt.. Því vil ég bara spyrja ykkur, hafið þið nokkurntíman heyrt eitthvað um þessa undirtegund Ibanez ?? Ibanez TR Series.. Endilega ef þið hafið heyrt, séð eða vitið eitthvað um þetta megið þið...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok