Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

snikkers
snikkers Notandi frá fornöld 128 stig

Fiat Brava til sölu (0 álit)

í Bílar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Til sölu, Fiat Brava árg '00 Myndir af bílnum og nánari upplýsingar er hægt að nálgast á slóðinni hér fyrir neðan http://this.is/netmark/not/quack/Fiat/fiatbrava.htm

Barnagælur - Tha' Mic's (6 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Kæru landar mínir, því skal ég ykkur lofa að þegar börnin ykkar allra eru farin að sofa þá mun ég læðast inn til þeirra eins og svartklædd vofa og taka þau með mér heim í minn litla hlýja kofa Stofan mín er lítil, en það er samt nóg fyrir mig til að athafna mig og vinna mér inn nokkur stig Ég drösla börnunum ykkar eldhúsið í skelli þeim á pönnuna, þá myndast reykský Þa'er ekkert hægt að gera í því, trúið mér því ég hef reynt þessar barnasteikingar þær fara svo leynt Þið takið ekk'eftir að...

ný netverzlun (1 álit)

í Hip hop fyrir 20 árum, 8 mánuðum
ný netverslun úr hiphop heiminum.. check it www.cafeshops.com/thamics

Pizzustaðir (3 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
ég var ekki alveg viss um hvar ég ætti að röfla um þetta en ég valdi þennan stað.. Af hverju er ekki hægt að panta pitsur á internetinu? ég er hérna í mestu makindum að ircast og nördast, og ég vil geta pantað mér pitsu án þess að standa upp og hringja…

Vantar varahluti í Audi 100/200 '84 (0 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Ég er að fara að gera upp gamlan Audi 200 turbo 1984 model og mig vantar alls kyns varahluti, mest megnis vélarhluti, í bílinn. Ef það á einhver, eða veit um einhvern sem á, gamlan Audi 100 quadro eða 200 bíl með vél í góðu lagi sem hann er til í að selja mér til varahlutanotkunnar má hann senda mér skilaboð.

Tha' Mic's aftur í stúdíó (6 álit)

í Hip hop fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Já, síðla ágústmánaðar skruppu félagarnir Sverrir A og MC Hawk í Grjótnámuna til þess að taka upp rappmúsík. Heppnaðist ekki betur en að ekki náðist að klára að taka upp allt sem stefnt var að taka upp og því mun Sverrir A halda á ný í stúdíó mjög líklega strax í næstu viku. Eins og kunnugt er er MC Hawk enn í Tékklandi að læra að dansa polka, einnig hefur heyrst að stór skóframleiðandi hafi lýst yfir áhuga sínum yfir að fá hann til þess að leika í stígvélaauglýsingum á vegum fyrirtækisins...

X-D Vs. X-R (2 álit)

í Deiglan fyrir 22 árum
Núna eru borgarstjórnarkosningar í nánd og listarnir berjast um hylli almennings. Slagurinn er aðallega á milli X-D og X-R, það er, Björns Bjarnasonar og Ingibjargar Gísladóttur. Nú bý ég ekki í Reykjavík en ég geng í skóla hér og ég starfa í alræmdu ríkisbatteríi og mín skoðun er sú að Ingibjörg ætti að halda borgarstjóratitlinum. Hún er jú skárri kosturinn. Björn Bjarnason, fyrrverandi menntamálaráðherra, hefur verið “stjórmálamaður sem hefur kosið að láta verkin tala” eins og hann orðar...

Sage Francis á Gauknum (10 álit)

í Hip hop fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Eins og allir hip-hop aðdáendur ættu að hafa tekið eftir er von á Sage Francis til landsins. Hann lendir á keflavíkurflugvelli strax á morgun (12. mars) og verður á hip-hop djammi gauksins fimmtudaginn 14. mars. Ég ætlaði bara sð koma því að, að á vefsíðu Rökbrota og rökleysu, rokbrot.cjb.net , mun verða birt viðtal við kappann núna í vikunni. Hvet alla til að kíkja við á Rökbrotum og kanna málið.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok