Ég keypti mér bassa fyrir nokkru síðan, óendanlega fallegur rauður 5-strengja Ibanez bassi. Alveg hágæða hljóðfæri og gæti ég ekki verið ánægðari með hann.. Um daginn fór ég að grennslast fyrir um þetta hljóðfæri og reyndi ég meðal annars að finna myndir af honum á netinu.. Það reyndist vera ógerlegt.. Því vil ég bara spyrja ykkur, hafið þið nokkurntíman heyrt eitthvað um þessa undirtegund Ibanez ?? Ibanez TR Series.. Endilega ef þið hafið heyrt, séð eða vitið eitthvað um þetta megið þið alveg endilega láta mig vita !