Sjúkl. er fertug, að öðru leyti ekkert athugavert.


Við rectal skoðun á sjúklingi, kemur fram áberandi kyndeyfð.


Sjúkl. hefur átt við gott heilsufar að stríða.


Sjúkl. á vanda til að fara austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur.


Hún hefur þroskast eðlilega framantil.


Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf.


Sjúklingurinn lærði söngnám.


Sjúklingi batnar ef lagst er ofan á hana (medicin).


Sjúklingurinn fékk þá mjög langsótt kvef.


Sjúklingurinn hefur verið mædd s. l. 5 ár.


Móðir getur látið barnið sitja með því að láta fæturna í hring.


Misnotaði áfengi í óhófi áður fyrr.


Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.


Þessi maður veit ekki skyldleika í ætt.


Leitað er að náraherníu liggjandi og standandi.


Sjúklingurinn hefur fremur óbærilega verki.


Við komu á spítalann var sjúkl. fljótlega skoðaður af undirrituðum, og kemur þá í ljós að um er að ræða 46 ára gamlan karlmann sem er þrekvaxinn og vöðvastæltur.


Sjúklingur fær verki í bringunni ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í eitt ár.


Á öðrum degi var hnéð betra og á þriðja degi var það alveg horfið.


Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að hitta mig árið 1983.


Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niðurúr.


Sjúklingur tárast og grætur stöðugt. Virðist líka vera niðurdreginn.


Sjúlkingur hefur skilið hvítu blóðkornin eftir á öðrum spítala.


Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.


Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þar til flugvélin hans varð eldsneytislaus og hrapaði.


Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitthvora áttina í byrjun desember.


Þegar hann var lagður inn, hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.


Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunnmat og lystarstol í hádeginu.

Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn, en hann hefur haft fjóra fætur frá því hann lenti í slysinu, en þann síðasta fékk hann í apríl síðastliðinn.


Sagan er fengin frá uppgefnum ættingja.


Fékk vægan verk í morgunsárið


Sjúklingur sat inni í setustofu og var að drekka te og borða hrís, þegar að bar maður sem hét Sigurmundur.


Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt.


Sjúklingurinn hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað, en er ráðlagt eftirlit, ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri.


Sjúklingur hefur formlegar hægðir.


Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt, með kjötbollum, eftir það var hún í samkvæmi.


Sjúklingur borðar reglulegt mataræði


Sjúklingur tekur engin lyf, en Magnyl þess á milli.


Sjúklingur er svo hress að hann gæti farið landleiðina til Akureyrar.