Loksins er Vista komið í almenna dreifingu á Íslandi. Það sem kom mér á óvart þegar ég fletti í gegnum vefverslun Computer.is var verðlagið.

Eins og flestir vita verður Vista gefið út í nokkrum útgáfum. Ég ætla að telja upp verðlagið á Vista og bera það saman við XP kerfin.

Computer.is
9.490 Vista Home Basic
9.890 XP Home
11.900 XP Media Center (afsláttarverð)
11.997 Vista Home Premium
14.852 XP Professional X64
20.805 Vista Ultimate

Þessi verð koma mér verulega á óvart, þar sem ég bjóst við minnst tvöföldum þessum upphæðum og hefði ég helst haldið að um innsláttarvillur væri að ræða, enda hef ég ekki séð Vista ódýrara.