Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.776 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr og endurbættur Toyota Avensis er væntanlegur á markað í byrjun næsta árs. Bíllinn hefur verið tekinn í gegn bæði að innan og utan og á hönnun hans að falla sérstaklega að kröfum evrópumarkaðar þar sem Toyota hefur mikinn áhuga á að auka hlut sinn. Enda er bíllinn hannaður af ED2 hönnunardeild Toyota í Nice en Toyota gerir ráð fyrir að helstu keppinautar í Evrópu verði Opel Vectra, Ford Mondeo og Volkswagen Passat.

Mótorhjól (1 álit)

Mótorhjól Hehehehe

Bilar (0 álit)

Bilar Hér er tvíburabróðir Citroën Saxo en VTS og Peugeot 106 GTi (eða S16) eru að miklu leiti sömu bílarnir. Peugeotinn er þó að mínu mati fallegri og líklegast enn skemmtilegri!

Bilar (0 álit)

Bilar Árið 1987 var síðasta framleiðsluár Buick Grand National en í þessum bílum var 3,8 lítra V6 turbo vél!
Aðeins einn svona bíll er til á landinu og er hann 1985 árgerð.

Bilar (1 álit)

Bilar Rakst á þessa mynd á síðu ættaðri frá USA. Undir myndinni voru rituð hin fleygu orð “BMW look Integra”. Allt dettur fólki nú í hug…….

Bilar (0 álit)

Bilar Það virðist spretta endalaust upp af sportbílaframleiðendum í Bretlandi. Því miður liggur leiðin oft beint í gjaldþrot og bílar sem lofa góðu komast jafnvel ekki á markað.
Invicta kynnti nýlega hinn metnaðarfulla S1, sem gæti haft til að bera það sem þarf, frágang. Án góðs frágangs selurðu ekki bíla undir óþekktu merki á verði Porsche 911. Sama þótt bíllinn sé með yfirbyggingu úr koltrefjum sem skilar lágri þyngd og traustri 320 hesta V8 sem tryggir svo léttum bílnum afköst.

Kíkið á http://www.invictacar.com/ til að sjá meira.

Bilar (0 álit)

Bilar Grönholm sigraði í sænska rallinu en í fáum nú í staðin mynd af gamalli Peugeot hetju. Hér er Ari Vatanen á Peugeot 405 T16 í Pikes Peak rallinu árið 1989 sem hann vann auðveldlega. Vatanen ók þessum Peugeot einnig í Raid Rallye Paris-Dakar rallinu sama ár og vann. Þetta er eflaust einn stærsti spoiler sem sést hefur á göturallíbíl.

Jeppar (0 álit)

Jeppar helvíti gæjalegur chevy
vantar meira af svona á íslandi

Mótorsport (0 álit)

Mótorsport þetta er prufunar bíll í Usa þeir eru að tjúnann upp feitan og vélin í þessu vá maður er að nálgast 300hp held ég eða það stóð, en þetta er BARA FLOTTUR BíLl

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr Toyota Avensis vs. Opel Vectra. Hönnuðir þessara bíla hafa augljóslega gengið í sama framljósahönnunarskóla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok