Gleymt lykilorð
Nýskráning
Vélar

Ofurhugar

Mal3 Mal3 2.096 stig
Aiwa Aiwa 1.776 stig
KITT KITT 1.650 stig
Dashinn Dashinn 1.480 stig
JoeyThunder JoeyThunder 1.296 stig
wiss wiss 1.264 stig
sputnik sputnik 1.244 stig

Bilar (0 álit)

Bilar Hin árlega Specialty Equipment Market Association (SEMA) aukahlutasýning er nú nýafstaðin í Las Vegas, USA. Þarna koma saman helstu aukahlutaframleiðendur þar vestra og sýna sínar helstu vörur. Ýmislegt athyglisvert sást á sýningunni en í heild má segja að Fast and The Furious andinn hafi svifið yfir vötnum í ár með skærum litum og tilheyrandi límiðum. Mini var sérdeilis vinsæll á sýningunni eins og Bílablað Moggans benti á núna um helgina. Bíllinn hér að ofan er hinsvegar af gerðinni VW Golf IV og er hér kominn með húddscoop og alles. Fleiri myndir frá sýningunni má sjá á www.urbanracer.com

Bilar (0 álit)

Bilar SVC- Saab variable compression. Saab hefur verið að gæla við þessa hugmynd allt frá 1981 en á bílasýningunni í Genauva var þessi vél fyrst kynnt opinberlega. Slagrými vélarinnar er 1.6l og framleiðir hún 225 bhp, hámarks tog er 305 NM

Bilar (0 álit)

Bilar Tek upp þráðinn þar sem Mal3 skildi við hann.
Kynni ykkur það nýjasta af norðurpólnum. Jólasveinninn löngu hættur að nenna að starta hreindýrunum fyrir styttri ferðir og Rúdolf fitnar bara heima - Ferrari mættur í staðinn :)

Bilar (0 álit)

Bilar Þessi er flottu

Bilar (0 álit)

Bilar Alister McRae ekur hér yfir eina af fjölmörgum lækjarsprænum sem eru á sérleiðunum í Argentínu. Alls er talið að lækirnir séu um 60-70 talsins. Þegar ekið er yfir á miklum hraða eins og menn gera er mikil hætta á að rafmagnskerfi í vélarhúsi verði fyrir skemmdum þar sem vatnkrafturinn er gríðar sterkur.

Mótorhjól (0 álit)

Mótorhjól nett hjól ég á svona

Bilar (0 álit)

Bilar Nýr Renault Clio V6 er væntanlegur á evrópumarkað um áramótin með smávegis útlitsupplyftingu og ýmsum endurbótum. 3 lítra V6 vélin skilar nú 255 hestöflum og togar 300nm, og vinnur á mun hærri snúning en áður. 6 gíra kassinn er lægra gíraður og hröðun er sögð eiga að vera undir 6 sekúndum. Fjöðrunin er orðin mun stífari, og hjólhafið meira. Hann kemur á 18" OZ Superturismo felgum og lítur að mínu mati mjög verklega út. Renault rúlar!

Bilar (0 álit)

Bilar Þetta gleður vonandi einhverja. Skv. heimildum mun Mazda RX-8 verða í Gran Turismo 3 og hefur Mazda unnið náið með framleiðendum leiksins. Ekki mikið að marka en þeim sem prufukeyrði líkaði samt vel! :)

Bilar (0 álit)

Bilar Hér má sjá Porsche 911 Carrera eftir nýjustu útlitsbreytinguna en nú er framendinn ekki ólíkur 911 Turbo. Að mínu mati er þetta engin framför og bíllinn er farinn að líta út eins og langur GT krúsari. Sárabót er þó að ný vél er komin, 3,6l í stað 3,4l og með henni er meira tog og 320 hestar í stað 300.

Bilar (0 álit)

Bilar Ford Ka í Martini Racing búningi, alls ekki svo galið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok