Bilar Það virðist spretta endalaust upp af sportbílaframleiðendum í Bretlandi. Því miður liggur leiðin oft beint í gjaldþrot og bílar sem lofa góðu komast jafnvel ekki á markað.
Invicta kynnti nýlega hinn metnaðarfulla S1, sem gæti haft til að bera það sem þarf, frágang. Án góðs frágangs selurðu ekki bíla undir óþekktu merki á verði Porsche 911. Sama þótt bíllinn sé með yfirbyggingu úr koltrefjum sem skilar lágri þyngd og traustri 320 hesta V8 sem tryggir svo léttum bílnum afköst.

Kíkið á http://www.invictacar.com/ til að sjá meira.